Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Mánudagur, 6. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:30 0 0°C
Laxárdalsh. 06:30 0 0°C
Vatnsskarð 06:30 0 0°C
Þverárfjall 06:30 0 0°C
Kjalarnes 06:30 0 0°C
Hafnarfjall 06:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Gunnar Rúnar
Gunnar Rúnar
Fréttir | 24. mars 2021 - kl. 13:11
Gunnar á Akri sækist eftir 1.- 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi

Gunnar Rúnar Kristjánsson á Akri í Húnavatnshreppi sækist eftir 1.-4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Gunnar er fæddur og uppalinn í Reykjavík en hefur lengst af búið utan höfuðborgarsvæðisins. Hann er menntaður í búvísindum frá landbúnaðarháskólanum í Danmörku og hefur stundað mastersnám í opinberri stjórnsýslu í Háskóla Íslands. Gunnar starfar hjá RARIK á Blönduósi og er giftur Jóhönnu Erlu Pálmadóttur.

Tilkynning frá Gunnari:

Ég er fæddur og uppalin í Reykjavík, nánar tiltekið í Laugarnesinu en lengst af búið utan höfuðborgarsvæðisins. Frá 1997 hef ég búið á Akri í Húnavatnshreppi. Ég er giftur Jóhönnu Erlu Pálmadóttur og eigum við tvö uppkomin börn. Ég er menntaður í búvísindum frá landbúnaðarháskólanum í Danmörku. Auk þess hef ég verið í mastersnámi í opinberri stjórnsýslu í HÍ og á ritgerðina eftir. Við höfum rekið lítið sauðfjárbú á Akri en auk þess starfa ég hjá Rarik á Blönduósi.

Frá því að ég byrjaði að fylgjast með stjórnmálum hefur jafnaðarstefnan verið sú stefna sem hefur höfðað mest til mín. Ég gekk í samfylkinguna 2012. Ég er 63 ára gamall og þykir sjálfsagt mörgum skrítið að ég skuli vera að þessu framboðsbrölti orðin þetta gamall en því er til að svara að áhugi minn á meiri þátttöku í stjórnmálum en starfi í grasrótinni eingöngu hefur bara aukist.

Efnahags- og atvinnumál eru mér mjög hugleikin. Það eru spennandi tímar framundan þar sem samtvinna þarf atvinnu- og efnahagsmál við stefnu okkar í loftslags- og umhverfismálum. Þetta kallar á nýja hugsun.

Heilbrigðiskerfið okkar þykkir mjög gott en er það raunin? Vissulega tókst landsspítalanum að halda sjó að mestu þrátt fyrir holskeflur Covid. Það mæddi mjög á starfsfólkinu og í raun aðdáunarvert hvað það var tilbúið að fórna sér. Önnur starfsemi þurfti að víkja og fresta þurfti valkvæðum aðgerðum. Veirusýkingar koma og fara og því nauðsynlegt að byggja heilbrigðiskerfið upp miðað við það. Þá er nauðsynlegt að styrkja heilsugæslu um allt land og efla fjarlækningar.

Jafnaðarstefnan sem grundvallast í Frelsi – Jafnrétti – Samstaða á sér langa sögu en á jafnmikið erindi við landsmenn í dag eins og áður.

Við upplifum að fátækt er að aukast og lífeyrisþegar og öryrkjar bera minna og minna úr býtum. Kreppur eins og við búum við í augnablikinu magna upp erfiðleika þessara hópa. Þá er auðurinn að safnast á mun færri hendur. Breytinga er þörf og því er ég tilbúin að leggja lið.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið