Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:18 0 0°C
Laxárdalsh. 23:18 0 0°C
Vatnsskarð 23:18 0 0°C
Þverárfjall 23:18 0 0°C
Kjalarnes 23:18 0 0°C
Hafnarfjall 23:18 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 09:36
Mikil ánægja með Hæfnihringi

Á dögunum lauk Hæfnihringjum, samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga, sem snýr að stuðningi fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni. Hæfnihringirnir fóru af stað í byrjun febrúar og stóðu yfir í 5-6 vikur. Alls voru 40 konur skráðar um land allt. Konunum var skipt upp í sex hópa og fóru þeir fram á netinu í gegnum forritið Zoom. Mikil ánægja var með Hæfnihringina.

Þetta kemur fram á vef Samtaks veitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hæfnihringirnir eru byggðir á jafningjafræðslu og á aðferðafræði sem kallast aðgerðanám. Aðgerðarnám grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Í hópunum var meðal annars farið yfir markmiðasetningu, tímastjórnun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum.

Verkefnið er byggt á evrópuverkefninu FREE, Female Rural Enterprise Empowerment, en kveikjan að því verkefni var að rannsóknir sýndu að frumkvöðlakonur á landsbyggðinni hafa oft ekki tök á því að ferðast um langan veg til að taka þátt í námskeiðum eða fundum um stofnun og rekstur fyrirtækja. Þær vilja hafa aðgang að fræðslu og gagnlegu efni í gegnum netið en auk þess eru tengslanet oft á tíðum ekki eins öflug og á þéttbýlli svæðum. Með þátttöku í hæfnihringjunum fá konur á landsbyggðinni aðgang að fræðslu sem snertir þeirra rekstur sem og dýrmætt tengslanet við konur sem standa í svipuðum sporum og geta miðlað af sinni reynslu.

Á vef SSNV kemur fram að í haust sé stefnan sett á að fara aftur af stað með nýja hópa og verða hæfnihringirnir auglýstir þegar nær dregur.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið