Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:47 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:47 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:47 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:47 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:47 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:47 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi hafa ákveðið framboðslista flokksins fyrir alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi. Framboðslistinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu aukakjördæmisþingi Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í fjarfundi í gær.
Póstkosning um fimm efstu sæti listans fór fram dagana 16. febrúar - 13. mars, en samkvæmt framboðsreglum Framsóknar gerir kjörstjórn tillögu um skipan framboðslistans í heild að öðru leyti til stjórnar kjördæmissambandsins sem leggur hann fyrir aukakjördæmisþing.
Í tilkynningu frá Framsókn segir að framboðslistinn í Norðvesturkjördæmi sé skipaður öflugu fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem eigi það sameiginlegt að vilja vinna að stöðugum umbótum á samfélaginu á grunni samvinnu og jafnaðar. Á listanum fari saman víðtæk þekking, reynsla, framsýni og kraftur til að vinna að öflugu samfélagi, með öruggar grunnstoðir og fjölbreytt atvinnulíf í öndvegi.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar er oddviti listans. Í öðru sæti er Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna. Þriðja sætið skipar Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður. Í fjórða sæti er Friðrik Már Sigurðsson, bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra og fimmta sætið skipar Iða Marsibil Jónsdóttir, skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sveinn Bernódusson, járnsmíðameistari í Bolungarvík, skipar heiðurssæti listans.
Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi
- Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki - Yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
- Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð - Háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
- Halla Signý Kristjánsdóttir, Önundarfirði – Alþingismaður
- Friðrik Már Sigurðsson, Húnaþingi vestra - Bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra
- Iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð - Skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
- Elsa Lára Arnardóttir, Akranesi - Aðstoðarskólastjóri, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar og f.v. alþingismaður
- Þorgils Magnússon, Blönduósi - Skipulags- og byggingarfulltrúi
- Gunnar Ásgrímsson, Sauðárkróki – Háskólanemi
- Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir, Stykkishólmi – Nemi
- Jóhanna María Sigmundsdóttir, Búðardal - Verkefnastjóri og f.v alþingismaður
- Ragnheiður Ingimundardóttir, Strandabyggð – Verslunarstjóri
- Gauti Geirsson, Ísafirði – Nemi
- Sæþór Már Hinriksson, Sauðárkróki – Tónlistarmaður
- Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Borgarbyggð – Lögreglumaður
- Sigurdís Katla Jónsdóttir, Dalabyggð – Nemi
- Sveinn Bernódusson, Bolungarvík - Járnsmíðameistari
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |