Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:27 0 0°C
Laxárdalsh. 21:27 0 0°C
Vatnsskarð 21:27 0 0°C
Þverárfjall 21:27 0 0°C
Kjalarnes 21:27 0 0°C
Hafnarfjall 21:27 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Greta Clough. Mynd: byggdastofnun.is
Greta Clough. Mynd: byggdastofnun.is
Fréttir | 17. maí 2021 - kl. 11:01
Handbendi hlýtur Eyrarrósina 2021

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í sautjánda sinn í gær við hátíðlega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin.

Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni og er það í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra. Greta Clough, stofnandi og listrænn stjórnandi Handbendis tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð kr. 2.500.000. Viðurkenningunni fylgir að auki boð um að standa á viðburði á Listahátíð 2022 og framleitt verður vandað heimildamyndband um verkefnið.

Alls bárust 36 umsóknir um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 hvaðanæva af landinu.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar eru ný af nálinni og eru veitt þremur verkefnum sem hafa verið starfrækt í þrjú ár eða skemur. Verðlaunin eru veitt metnaðarfullum verkefnum sem þykja hafa listrænan slagkraft, jákvæð áhrif á nærsamfélagið og hafa alla burði til að festa sig í sessi.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 hlutu Boreal Screendance Festival, Akureyri, IceDocs – Iceland Documentary Film Festival, Akranesi og Röstin gestavinnustofa, Þórshöfn. Hljóta þau hvert um sig verðlaunafé að upphæð kr. 750.000 auk gjafakorts frá Icelandair að upphæð kr. 100.000.

Handbendi brúðuleikhús
Handbendi var stofnað árið 2016 af leikstjóranum og brúðuleikaranum Gretu Clough og er hún jafnframt listrænn stjórnandi leikhússins. Handbendi er eina starfandi atvinnuleikhúsið á Norðurlandi vestra og eitt af sárafáum slíkum utan höfuðborgarsvæðisins.

Fjölbreytt starfsemi Handbendis byggir á bjargfastri trú á gildi listanna fyrir dreifðari byggðir en ekki síður á gildi þess sem dreifbýlið hefur uppá að bjóða fyrir listirnar.

Auk þess að framleiða brúðuleiksýningar í háum gæðaflokki, ferðast með þær um landið og á erlendar hátíðir, rekur Handbendi stúdíó þar sem áhersla er lögð á upptökur og framleiðslu á stafrænu efni af ýmsum toga.. Þá leggur leikhúsið sérstaka áherslu á að hafa frumkvæði að og leiða samfélagstengd verkefni af ýmsum toga, þar á meðal með börnum og ungu fólki.

Nýjasta skrautfjöðrin í hatt Handbendis er alþjóðleg brúðuleikhúshátíð - Hvammstangi International Puppet Festival - eða HIP Fest - sem fram fór í fyrsta sinn á síðasta ári og verður hér eftir árlegur viðburður í október.Holl hreyfingi og heilbrigt líferni enda er góð næring og dagleg hreyfing nauðsynleg undirstaða heilbrigðis lífs. Regluleg hreyfing hefur margþættan ávinning fyrir heilsuna, hún minnkar líkur á sjúkdómum, eykur lífsgæði og lengir líf okkar.

Sjá nánari umfjöllun á vef Byggðastofnunar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið