Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:17 0 0°C
Laxárdalsh. 12:17 0 0°C
Vatnsskarð 12:17 0 0°C
Þverárfjall 12:17 0 0°C
Kjalarnes 12:17 0 0°C
Hafnarfjall 12:17 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Fréttir | 21. nóvember 2021 - kl. 07:23
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn sunnudaginn 21. nóvember. Í ár er kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir eru haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is.

Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð klukkan 14 í dag. Forseti Íslands og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verða viðstaddir og flytja ávörp. Við þetta tækifæri munu forseti og ráðherra, ásamt fulltrúum viðbragðsaðila, kveikja á kertum til minningar um fórnarlömb umferðarslysa. Boðuð verður einnar mínútu þögn sem landsmenn eru hvattir til að taka þátt í. Vegna faraldursins verður streymt frá athöfninni á vef minningardagsins og á Facebook og er fólk hvatt til að njóta þess og sýna viðeigandi hluttekningu. 

Sautján minningarviðburðir eru skipulagðir um land allt í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg og verða flestir þeirra í beinu vefstreymi. Fólk er hvatt til að taka þátt með því að fylgjast með í gegnum streymi og kveikja á kertum til minningar um fólk sem látist hefur eða slasast alvarlega í umferðinni. 

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum sem eru með lifandi, beina útsendingu, í dag klukkan 14.

Alþjóðlegur minningardagur

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf. 

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. 

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi (til og með 16. nóvember 2021). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. 

Það sem af er þessu ári hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Allt árið 2020 létust sjö einstaklingar í umferðinni en árið 2019 sex manns. Alls liðu 258 dagar án nokkurs banaslyss á árinu og er það lengsti tími frá því að skráningar hófust 1966. Að meðaltali hafa undanfarin tíu ár 12 manns látist í umferðinni á hverju ári. Tíu ár þar á undan þ.e. frá 2001 til og með 2010 létust að meðaltali 20 manns á ári í umferðinni hér á landi. 

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð. 

  • Dagskrá allra viðburða og nánari upplýsingar á minningardagur.is
  • Hlekkur á beint streymi frá minningarathöfn í Skógarhlíð í Reykjavík

Að baki framkvæmd minningardagsins hér á landi standa: Landsbjörg, Lögreglan, samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, Samgöngustofa, Sjálfsbjörg og Vegagerðin.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið