Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:09 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:09 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:09 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:09 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:09 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:09 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna er líklega eitt mest lesna rit ársins víða um land. Skráin er nú komin út á rafrænu formi en prentaða útgáfan er væntanleg í næstu viku. „Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast þann 1. desember nk. og standa til 21. desember nk. Af þessum 48 hrútum eru þrjátíu hyrndir og þar af einn ferhyrndur, fjórtán kollóttir, tveir feldfjárhrútar og loks tveir forystuhrútar. Í hópi þessara hrúta er að finna nítján hrúta sem eru að hefja sinn fyrsta vetur á stöð. Hér ættu því allir sauðfjárræktendur að geta fundið hrút til notkunar sem fellur að þeirra áhuga og kröfum,“ segir á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, rml.is.
Margir hafa komið að gerð hrútaskráarinnar. Lýsingar og umsagnir hrúta hafa skrifað þeir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Eyþór Einarsson, Lárus G. Birgisson og Árni Brynjar Bragason. Vinnsla gagna hefur að langmestu leyti verið í höndum Eyjólfs Ingva. Sigurður Kristjánsson sá um prófarkalestur ásamt höfundum lýsinga og Rósa Björk Jónsdóttir um umbrot. Myndir í skránni eru eftir Höllu Eyglóu Sveinsdóttur og Anton Torfa Bergsson. Greinar í skránni eru eftir þau Eyþór Einarsson, Karólínu Elísabetardóttur og Stefaníu Þorgeirsdóttur. Þorsteinn Ólafsson samdi texta um sauðfjársæðingar og beiðsli. Umsjón með prentun hefur Olgeir Helgi Ragnarsson, en ritstjóri er Guðmundur Jóhannesson.
Hægt er að skoða Hrútaskrána rafrænt hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |