Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands telur það óásættanlegt að vetrarþjónustu að vegum á ferðamannastöðum á Norðurlandi sé jafn ábótavant og raun ber vitni. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á síðasta stjórnarfundi MN. Sérstaklega er bent á vetrarþjónustu á Vatnsnesvegi að Hvítserk og á Demantshringnum sem var formlega opnaður á síðasta ári.
„Ástandið er í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um jafna árstíðasveiflu í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan hefur upplifað mikil áföll undanfarin misseri og ríður á að ryðja úr vegi hindrunum sem koma í veg fyrir viðspyrnu í greininni, enda eykur góð vetrarþjónusta líkurnar á verðmætasköpun í ferðaþjónustu. Skortur á vetrarþjónustu stofnar öryggi vegfarenda í óþarfa hættu og ætti að vera forgangsmál að bæta þar úr til að tryggja öryggi og upplifun gesta og íbúa. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands skorar á ríkisvaldið að bæta til muna vetrarþjónustu á vinsælum ferðamannastöðum á svæðinu og horfa þar sérstaklega til nýopnaðs Demantshrings og Vatnsnesvegar að Hvítserk,” segir í ályktuninni.
Í markaðssetningu á áfangastaðnum Norðurlandi skipta samgöngur gríðarlega miklu máli og þá sérstaklega með tilliti til vetrarferðaþjónustu. Áfangastaðir á borð við Hvítserk, Dettifoss og Ásbyrgi eru eftirsóttir hjá erlendum ferðaskrifstofum og ferðamönnum allan ársins hring. MN hefur fundið fyrir þessum mikla áhuga á ferðakaupstefnum erlendis og því er til mikils að vinna að koma á bættri vetrarþjónustu á Norðurlandi, segir í tilkynningu frá MN.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |