Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:22 0 0°C
Laxárdalsh. 00:22 0 0°C
Vatnsskarð 00:22 0 0°C
Þverárfjall 00:22 0 0°C
Kjalarnes 00:22 0 0°C
Hafnarfjall 00:22 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 02. mars 2016 - kl. 11:40
Hagnaðinn til neytenda
Eftir Elsu Láru Arnardóttur

Þessa dagana heyrum við fréttir af gríðarlegum hagnaði viðskiptabankanna þriggja, þ.e. Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka. Samanlagt tóku þeir inn 80 milljarða króna hagnað á síðasta ári og er hagnaður þeirra þriggja frá hruni 370 milljarðar. Þessi hagnaður kemur á sama tíma og þessir sömu viðskiptabankar hafa verið að bæta við þjónustugjöldum og í mörgum tilfellum að hækka þau þjónustugjöld sem fyrir voru. Má þar meðal annars nefna úttektargjald, hraðbankagjald, svargjald bankaþjónustu, greiðslugjald, kortagjald og svona er hægt að telja áfram. Þessir gjaldaliðir eru um 30 talsins. Þingmaður Framsóknarflokksins Karl Garðarsson gerir ágætlega grein fyrir þessum þjónustugjöldum í færslu á Eyjunni. Færsluna má finna hér: http://blog.pressan.is/karlg/2016/02/09/svona-erum-vid-feflett/. Í færslu hans kemur jafnframt fram að fólki blöskri og það sé búið að fá nóg. Það er ekki annað hægt en að taka heils hugar undir þau orð hans þegar kemur að þessum þáttum í bankakerfinu. Við þurfum að skapa nýtt og heiðarlegra bankakerfi.

Hvað er til ráða?

Aðgreina þarf á milli fjárfestingar- og viðskiptabanka. Afnema þarf verðtryggingu og taka um leið á því vaxtaumhverfi sem við búum við. Jafnframt þarf að líta til hugmynda Frosta Sigurjónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um breytt peningakerfi. Samantekt um málið er að finna hér: https://www.forsaetisraduneyti.is/media/Skyrslur/monetary-reform-samantekt-isl.pdf. Meðan þessi vinna er í gangi eiga forsvarsmenn þessara fjármálastofnana að sýna sóma sinn í því að leyfa neytendum landsins að finna fyrir þeim gríðarlega hagnaði sem fjármálastofnanirnar hafa náð. Það ættu þeir að geta gert með því að kalla til baka þær hækkanir sem orðið hafa á þjónustugjöldum eða fækka þeim þjónustuliðum sem rukkað er fyrir og að lækka vexti. Það gæti orðið gríðarleg kjarabót fyrir heimili landsins.

Greinin er byggð upp á ræðu sem höfundur flutti í Störfum þingsins, þann 1. mars s.l.

Elsa Lára Arnardóttir

- þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið