Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:40 0 0°C
Laxárdalsh. 21:40 0 0°C
Vatnsskarð 21:40 0 0°C
Þverárfjall 21:40 0 0°C
Kjalarnes 21:40 0 0°C
Hafnarfjall 21:40 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 25. október 2016 - kl. 09:01
Hversu heppin er ég ?
Eftir Lilju Sigurðardóttur

Síðastliðið vor sat ég full af kvíða, söknuði og gremju og skrifaði pistil um hversu heppin ég væri. Auðvitað snerist pistillinn ekki bara um heppni mína, heldur snerist hann um það hvernig aðstæður eru fyrir fólk sem býr úti á landi og þarf að ferðast langar leiðir til að eignast börn. Ef ég tek sjálfa mig sem dæmi þá er ég heppin að eiga systkini í Reykjavík sem geta lánað mér herbergi og veitt mér húsaskjól. Það eru ekki allir svo heppnir. Reykjavík er í u.þ.b. 5 klst akstursfjarlægð frá Patreksfirði og þarf ólétt kona samkvæmt læknisráði að vera komin nálægt fæðingardeild a.m.k. 2 vikum fyrir settan dag. Í bæði skiptin sem ég hef fætt barn hef ég þurft að vera fjarri heimili mínu í rúmar 4 vikur en unnusti minn var hjá mér í rúmar 2 vikur í hvort skiptið. Hann gat ekki verið með mér allan tímann þar sem réttur til fæðingarorlofs hefst ekki fyrr en í þeim mánuði sem barn á að fæðast. Við ákváðum að raska ekki rútínu tæplega 2ja ára dóttur okkar með því að flytja hana með okkur, heldur varð hún eftir heima í umsjá tengdamóður og foreldra minna sem búa öll í sama þorpi og við, sem betur fer.

Það eru ekki allir jafn heppin og við að vera í þeim aðstæðum. Fyrir utan röskun á heimilislífi þá þarf að halda úti tveimur heimilum og í flestum tilfellum getur hvorugur aðili stundað vinnu á meðan beðið er. Eini kostnaðurinn sem er greiddur á meðan þessu stendur er ferðakostnaður frá heimili að fæðingardeild og tilbaka. Ástæðan sem okkur er gefin er sú að við veljum sjálf að búa á stað fjarri fæðingardeild og því er þetta á okkar kostnað. Er þetta jafnræði íbúa þessa lands?
Í ályktun sem samþykkt var á nýafstöðnu Flokksþingi Framsóknarflokksins kemur fram tillaga um að foreldrar sem þurfi að dvelja fjarri heimili sínu vegna fæðingar barns fái styrk úr fæðingarorlofssjóði svo að fæðingarorlof sé hægt að nýta að fullu eftir fæðingu barns. Að mínu mati er þetta engin spurning það er ekki  sanngjarnt að hafa þessar aðstæður árið 2016.

Lilja Sigurðardóttir er í 4.sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Einnig starfar hún sem gæðastjóri hjá Arnarlax hf á Bíldudal.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið