Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:33 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:33 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:33 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:33 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:33 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:33 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þegar maður knýr dyra og óskar inngöngu er það gamall og góður siður að kynna sig.
Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi blása til kjördæmisþings þann 8. október nk. á Bifröst þar sem kjósa skal listann sem verður í framboði til alþingiskosninga nú í haust. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til kjörs í 2. sæti á listann. Halla Signý Kristjánsdóttir heiti ég og er búsett í Bolungarvík.
Ég er viðskiptafræðingur að mennt auk þess sem ég er með diploma í opinberri stjórnsýslu. Hef starfað við fjölbreytt störf var m.a. bóndi í 10 ár og starfa nú sem fjármálastjóri Bolungarvíkurkaupstaðar, auk þess sem ég hef unnið mikið að félagsmálum.
Það sem brennur á í þessu kjördæmi eru byggðamálin og jafnrétti til búsetu, bæði hvað varðar grunnþjónustu eins og heilbrigðisþjónustu og skóla. Jafna þarf mun á milli svæða hvað samgöngur, raforkuöryggi og atvinnumál varðar. Stryrkja þarf stoðir atvinnulífsins til sjávar og sveita svo tryggt verði í öllum fjórðungum öflugur atvinnuvegur á fjölbreyttum grunni. Málefnum aldraðra og öryrkja þarf að hlúa að og sem og mannréttindum fatlaðra til náms og heilbrigðisþjónustu hvar sem þeir búa á landinu.
Ég býð mig fram til heiðarlegrar þátttöku í stjórnmálum landsins þar sem haft verður að leiðarljósi samtal ólíkra aðila og skoðana til framfara öllum landsmönnum. Það verður verkefni komandi kjörtímabils að koma á festu í íslenskum stjórnmálum og vinna af heilindum til að auka traust á þeim sem vinna að stefnumótun í íslenskum stjórnmálum.
Halla Signý Kristjánsdóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |