21:37 |
07. maí 2021 |
Viðmiðunardagur kjörskrár fyrir komandi sameiningarkosningu
Viðmiðunardagur kjörskrár fyrir komandi sameiningarkosningu í Austur-Húnavatnssýslu er 15. maí næstkomandi. Um er að ræða sameiningarkosningu þar sem íbúar taka afstöðu til sameiningar Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og sveitarfélagsins Skagastrandar í Austur-Húnavatnssýslu. |
21:23 |
07. maí 2021 |
Styrkveiting Framkvæmdasjóðs ferðamála vegna Hrúteyjar
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra ákvað í dag að veita viðbótarframlag úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en í mars sl. úthlutaði ráðherra styrkjum úr sjóðnum alls 807 milljónum. Í dag úthlutaði ráðherra 122 milljónum og skiptast styrkirnir í þrjá flokka. |
20:58 |
07. maí 2021 |
Austur-Húnvetningar eiga fulltrúa í úrslitum Söngkeppni Samfés á sunnudaginn
Félagsmiðstöðin Skjólið á Blönduósi og Félagsmiðstöðin Undirheimar á Skagaströnd eiga fulltrúa í úrslitum Söngkeppni Samfés sem haldin verður í beinni útsendingu á RÚV sunnudaginn 9. maí og hefst kl. 15:00. |
13:55 |
07. maí 2021 |
Samkomutakmarkanir upp í 50 á mánudaginn
Breytingar verða gerðar á sóttvarnarreglum á mánudaginn og þá munu samkomutakmarkanir miða við hámark 50 manns í stað 20. Sund- og baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns. |
16:39 |
06. maí 2021 |
Ólafi þakkað fyrir vel unnin störf
Ólafur Jakobsson sem gegnt hefur starfi byggingafulltrúa í Húnaþingi vestra hefur látið af störfum hjá sveitarfélaginu, eins og fram kom í fréttum Húnahornsins í gær. Í tilkynningu á vef Húnaþings vestra þakkar sveitarstjórn Ólafi fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Húnaþing vestra hefur gert tímabundinn samning við Blönduósbæ um verkefni byggingarfulltrúa. |
16:31 |
06. maí 2021 |
Hættir líklega í viðskiptum við Arion banka
Blönduósbær mun að öllum líkindum færa viðskipti sín frá Arion banka og yfir í annan banka. Sveitarfélagið er nú þegar komið í viðræður við aðra fjármálastofnun og verður væntanlega bókað um það á næsta sveitarstjórnarfundi sem verður á þriðjudaginn í næstu viku. Þetta kom fram í máli Valdimars O. Hermannssonar í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag. |
10:21 |
06. maí 2021 |
Götur sópaðar á Blönduósi
Vorboðinn ljúfi, götusópurinn, er mættur á Blönduós og byrjaður að sópa sand, ryk og drullu af götunum eftir veturinn. Á vef Blönduósbæjar eru íbúar hvattir til að leggja ekki ökutækjum á götur á meðan sópað er þannig að hægt sé að sópa meðfram öllum kantsteinum. Margir íbúar hafa tekið sig til og sópað lausu efni af innkeyrslum og gangstéttum við húsin sín og hjálpa þannig til við hreinsum bæjarins. Götur á Hvammstanga og Laugarbakka verða sópaðar í næstu viku. |
21:57 |
05. maí 2021 |
Flugvél hlekktist á við Blönduósflugvöll í gær
Lítilli flugvél hlekktist á við lendingu við flugvöllinn á Blönduósi í gær. Engan sakaði en tveir voru um borð í vélinni. |
21:48 |
05. maí 2021 |
Grunnskólakrakkar kepptu í Skólahreysti
Húnavallaskóli endaði í öðru sæti í sínum riðli í Skólahreysti sem fram fór á Akureyri í gær og rétt missti af því að keppa til úrslita en úrslitin fara fram síðar í mánuðinum. Blönduskóli tók einnig þátt en átti erfitt uppdráttar í keppninni. Í Skólahreystis er keppt í upphýfingum, dýfum, armbeygjum, hreystigreip og hraðaþraut. |
16:33 |
05. maí 2021 |
Fýsileikakönnun á almenningssamgöngum á Norðurlands vestra
Út er komin skýrsla um fýsileika almenningssamganga á Norðurlandi vestra. Skýrslan er unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri með stuðningi úr Byggðaáætlun. Í skýrslunni eru skoðaðar þær leiðir sem mest þörf er á almenningssamgöngum í landshlutanum. |
15:16 |
05. maí 2021 |
Skrifstofustarf hjá embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra
Frá lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra auglýsir laust til umsóknar starf skrifstofumanns á starfsstöð embættisins að Suðurgötu 1 á Sauðárkróki. Um er að ræða 100% starf, tímabundið í eitt ár, og er æskilegt að viðkomandi geti hafi störf 1. júlí næstkomandi. |
14:04 |
05. maí 2021 |
Gildandi sóttvarnaráðstafanir framlengdar
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til dagsins í dag, 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis. Í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum á næstu vikum. |
13:53 |
05. maí 2021 |
Samnýta byggingafulltrúa tímabundið
Húnaþing vestra er án byggingafulltrúa en Ólafur Jakobsson, sem gegnt hefur starfinu að undanförnu, lét af störfum nýverið. Sveitarstjóra var falið að leita leiða til úrlausnar á verkefnum byggingafulltrúa og hefur tímabundin lausn verið fundin. Hún felst í samkomulagi við Blönduósbæ um störf byggingafulltrúa og mun Húnaþing vestra að auki ráða aðstoðarmann byggingafulltrúa í 50% stöðu. |
11:21 |
05. maí 2021 |
Breyting á bankaþjónustu á Blönduósi
Í dag er síðasti opnunardagur útibús Arion banka á Blönduósi. Frá og með morgundeginum verður engin bankaþjónusta á Blönduósi, í fyrsta skipti í 130 ár. Arion banki ákvað fyrr í vetur að sameina útibú bankans á Blönduósi við útibúið á Sauðárkróki. Félag eldri borgara í Húnaþingi og sveitarstjórnir í Austur-Húnavatnssýslu hafa mótmælt harðlega ákvörðun bankans og lýst yfir miklum vonbrigðum með skerta fjármálaþjónustu við íbúa, fyrirtæki og ferðamenn. |
20:05 |
04. maí 2021 |
Málþing um sameiningar sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um sameiningar sveitarfélaga og verður það haldið í fjarfundarbúnaðinum Teams föstudaginn 7. maí klukkan 08:30-10:00. Málþingið er öllum opið. Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri á Blönduósi er á meðal frummælenda á málþinginu. |