08:24 |
02. des. 2023 |
Tilkynningar |
Aðventuhátíð í Hólaneskirkju
Frá sóknarpresti
Aðventuhátíð í Hólaneskirkju fer fram sunnudaginn 3. desember klukkan18. Stína Gísladóttir emerítus flytur hugleiðingu. Kirkjukór Hólaneskirkju syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Fermingarbörn 2024, NTT-, TTT-, og sunnudagaskólabörn taka þátt í hátíðinni. Veitingar eftir hátíðina.
|
rzg
|
16:12 |
28. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Hugum að auðlindinni okkar - stillum kerfin og drögum úr sóun
Frá RARIK
RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu. Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu. Með því að yfirfara og stilla hitakerfið er komið í veg fyrir að vatnið fari óþarflega heitt frá hitakerfinu í fráveitu. Það lækkar hitaveitureikninginn, dregur úr sóun og varðveitir vatnsbúskap auðlindarinnar betur. |
rzg
|
13:04 |
27. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Ljósmyndasýning Héraðsskjalasafns A-Hún.
Ljósmyndasýning verður haldin á morgun þriðjudaginn 28. nóvember klukkan 16:00 að Hnjúkabyggð 30 í húsnæði Héraðsskjalasafns og Héraðsbókasafns. Þar verða sýndar nokkrar myndir á tjaldi frá ýmsum tímum og eru myndirnar allar úr safni Björns Bergmann. Að þessu sinni eru myndirnar eingöngu af fólki sem þarf að bera kennsl á. |
rzg
|
09:28 |
24. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Jólahlaðborð Félags eldri borgara og félags- og tómstundastarfs Húnabyggðar
Tilkynning
Jólahlaðborð Félags eldri borgara og félags- og tómstundastarfs Húnabyggðar 2023 verður haldið á B&S Restaurant Norðurlandsvegi 4 þann 7.desember 2023 og hefst klukkan 18.30. Verð er kr. 6.900. Vinsamlega skráið ykkur á geitaskard@emax.is eða í síma 8974341 eða á lista sem mun liggja frammi í tómstundastarfinu á Þverbraut 1 fyrir þriðjudaginn 5. desember. |
rzg
|
14:56 |
16. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Minnum á Jólasjóðinn
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur. |
rzg
|
09:17 |
16. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Haustferð Félags eldri borgara í Húnaþingi
Frá ferðanefndinni
Haustferð félagsins verður farinn þriðjudaginn 21. nóvember 2023. Heimsókn til Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra. Kaffiveitingar og spjall. Farið verður á rútu frá Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 14.45. |
rzg
|
16:10 |
13. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Stólajóga fellur niður
Frá Húnabyggð
Því miður þá fellur stólajóga hjá Svövu fyrir 60 ára og eldri niður um óákveðinn tíma. Við auglýsum þegar það byrjar aftur. Endilega látið berast. |
rzg
|
09:30 |
08. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Haustfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 14. nóvember 2023, klukkan 15.00, í Félagsheimilinu á Blönduósi. Sagt verður frá félagsstarfinu og kynnt næsta sumarferð félagsins. Einnig kynnt heimsókn til Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra þann 21. nóvember næstkomandi sem verður nánar auglýst síðar. |
rzg
|
11:11 |
02. nóv. 2023 |
Tilkynningar |
Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista
Frá nefndinni
Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardaginn 11. nóvember nk. Húsið opnar með fordrykk klukkan 19:00. Hafa Gaman framreiðir þriggja rétta matseðil. Veislustjórn: Elvar Logi Friðriksson. Hljómsveitin Steinliggur spilar. Aldurstakmark: 18 ára. Verð matur og skemmtun: 11.000 krónur. Þátttöku í mat og skemmtunina verður að skrá fyrir þriðjudaginn 7. nóvember. Verð bara á ballið 3.000 krónur. |
rzg
|
14:07 |
26. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Garðfuglakönnun fyrir alla - landið allt
Hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar hefst sunnudag 29. október 2023. Tilgangur hennar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr - aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt. |
rzg
|
21:07 |
23. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Taizé messa í Blönduóskirkju
Frá sóknarpresti
Verið velkomin til Taizé-messu í Blönduóskirkju miðvikudagskvöldið 25. október klukkan 20:00. Sungnir verða Taizé-sálmar sem eiga uppruna sinn í samnefndu þorpi í Frakklandi.
Sálmarnir eru fallegir og einfaldir bæna- og lofgjörðarsálmar þar sem stutt vers eru sungin endurtekið til íhugunar. |
rzg
|
09:44 |
23. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Dósasöfnun hjá knattspyrnudeild Hvatar
Knattspyrnudeild Hvatar stendur fyrir dósasöfnun í dag klukkan 17. Þá munu iðkendur Hvatar ganga í hús og safna dósum í fjáröflunarskyni. Þau sem ekki verða heima en vilja styrkja starfið geta skilið eftir poka við til dæmis útidyrnar. Takið vel á móti börnunum og styðjið gott málefni. |
rzg
|
12:08 |
20. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Húsnæðismál helsta umræðuefnið á haustfundi Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra
Haustfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga miðvikudaginn 25. október og hefst hann klukkan 14:00. Allir félagar hvattir til að mæta og koma sínum skoðunum á framfæri. Nýir félagar 60 ára og eldri ætíð velkomnir að bætast í hópinn. |
rzg
|
09:16 |
17. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Hver er staðan á íbúðamarkaði og atvinnuþróun í landsbyggðunum?
Byggðastofnun, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Húsnæðis og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Lóa nýsköpunarstyrkur standa saman að opnum fundi á Kaffi Krók í hádeginu fimmtudaginn 19.október og er hann öllum opinn. Þeir sem ekki eiga heimangengt geta séð beint vefstreymi frá fundinum inn á Facebókarsíðu Byggðastofnunar. |
rzg
|
10:19 |
14. okt. 2023 |
Tilkynningar |
Sögufélagsfundur í Krúttsalnum á sunnudag
Kaupskipaútgerð og niðursetningar
Húnvetningur - sögufélag efnir til fundar í Krúttsalnum á Blönduósi sunnud. 15. okt. kl. 14.00. Þar fjallar Kristján Sveinsson sagnfræðingur um kaupskipaútgerð, áætlunarsiglingar milli Íslands og nágrannalandanna, upphaf þeirra og þróun. Kristján sýnir myndir með fyrirlestrinum. Og Ingibergur Guðmundsson flytur erindi sem hann nefnir: |
rzg
|