Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Frá árinu 2012 hefur Sjávarlíftæknisetrið Biopol ehf, yfir vor og sumarmánuði, fylgst með eðlis- og lífffræðilegum þáttum sjávar fyrir utan Skagaströnd. Í þessum sýnatökum hefur hitastig og selta verið mæld á mismunandi dýpum og fylgst hefur verið með tegundasamsetningu og fjölda svifþörunga. Einnig hafa sérstök sýni verið tekin til þess að fylgjast með stærð og magni kræklingalirfa.
Starfsmaður var í upphafi þjálfaður til þess að fara í gegnum lirfusýnin og hefur sami aðili því sinnt þeim talningum frá upphafi. Fljótlega fór þessi samviskusami starfsmaður að veita athygli torkennilegum þráðum í mörgum litum sem sáust undir víðsjánni við lirfutalningarnar. Við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða plastþræði sem ákveðið var að telja ásamt kræklingalirfunum.
Í vor var síðan ákveðið að taka þessa talningu á plastþráðum alvarlegri tökum í ljósi þeirrar mikilvægu umræðu sem plastmengun í hafinu hefur fengið undanfarið. Í dag eru tekin vikulega sérstök sýni til þess að meta magn örplasts í Húnaflóa. Sýnatakan fer þannig fram að netháfi, sem hefur möskva sem eru 100 míkron (0,1mm) að stærð, er sökkt niður á 20 metra dýpi og síðan dreginn rólega upp á yfirborðið aftur. Við þá aðgerð er áætlað að í gegnum háfinn pressist 1413 lítrar af sjó og allar agnir sem er stærri en 100 míkron sitji eftir í háfnum. Innihaldi háfsins er síðan safnað í ílát og meðhöndlað á rannsóknastofu BioPol þar sem efni eru notuð til þess að leysa upp öll lífræn efni. Það sem eftir situr er í framhaldinu síað í gegnum síupappír og á honum koma því hugsanlegar plastagnir í ljós.
Á meðfylgjandi mynd sem tekin er í gegnum víðsjá má sjá það sem finna mátti í einu sýni sem tekið var í síðustu viku. Dæmi hver fyrir sig en okkur finnast þessar myndir frekar óhugnarlegar og varpa ljósi á að pastmengun í hafinu er ekki endilega bara vandamál sem snerta aðrar þjóðir og fjarlæg hafsvæði.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |