Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:26 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:26 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:26 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:26 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:26 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:26 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur ráðið Alexöndru Jóhannesdóttur í starf sveitarstjóra. Ráðningin var staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær með öllum greiddum atkvæðum. Alexandra lauk grunnprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 og meistaraprófi innan sömu greinar og frá sama skóla árið 2016. Gert er ráð fyrir að hún taki við starfi sveitarstjóra í desember.
Í tilkynningu um ráðningu Alexöndru kemur fram að hún hefur frá námi starfað m.a. sem lögfræðingur á Fisksistofu ásamt því að hafa yfirumsjón með samningaferlum og sinnt verkefnastjórnun hjá Listahátíð í Reykjavík. Í dag sinnir Alexandra störfum fyrir IP eignarhaldi og er framkvæmdastjóri tveggja félaga undir þeirri samsteypu ásamt því að sitja í stjórnum sjö mismunandi fyrirtækja.
Í störfum sínum hefur Alexandra því komið að fyrirtækjarekstri, sinnt almennum lögfræðistörfum m.a. á sviði ráðgjafar, samningagerðar og gerð viðskiptaáætlana. Jafnframt hefur hún sinnt tengslum við samstarfsaðila og viðskiptavini víðsvegar um heiminn.
Alexandra hefur unnið að ýmsum félagsstörfum og starfaði lengi sem sjálfboðaliði fyrir Rauða Krossinn. Einnig sinnti hún kennslu og umönnun barna og ungmenna hjá Osaberima Educational Center í Ghana í Vestur Afríku árið 2008.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |