Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:26 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:26 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:26 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:26 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:26 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:26 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Afrekskýrin Braut 112 á Tjörn á Skaga hefur rofið 100 tonna múrinn í æviafurðum en í lok febrúar síðastliðinn hafði hún mjólkað 99.821 kíló mjólkur yfir ævina. Samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins hefur dagsnyt hennar verið um 16 kíló og má því ætla að hún hafi mjólkað sínu 100 þúsundasta kílói mjólkur þann 12. mars eða þar um bil. Þessi farsæla og endingargóða kú er á 14. aldursári en afar fátítt er að kýr nái svo háum aldri og hvað þá að þær skili slíkum afurðum.
Braut 112 er fædd 12. september 2005, dóttir Stígs 97010 og Þúfu 026. Braut bar sínum fyrsta kálfi þann 23. október 2007 og hefur borið níu sinnum síðan þá, síðast 12. febrúar 2017. Mestum afurðum á einu ári náði Braut árið 2011 þegar hún mjólkaði 10.961 kíló en hún hefur fjórum sinnum náð ársafurðum upp á meira en 10 þúsund kíló, 2010 (10.007 kg), 2011 (10.961 kg), 2012 (10.190 kg) og 2017 (10.699 kg). Mestu mjólkurskeiðsafurðir hennar eru á yfirstandandi mjólkurskeiði sem er orðið æði langt. Hún er nú komin í 19.220 kíló frá síðasta burði. Á sínu 5. mjólkurskeiði mjólkaði hún hins vegar 14.630 kíló.
Á vef RML segir að Braut fari von bráðar á vit feðra sinna og að hún glími nú við erfiða júgurbólgu auk þess sem að hún hafi ekki náð að festa fang.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |