Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:10 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:10 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:10 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:10 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:10 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:10 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Áætla má að kostnaður við að leggja nýjan veg með bundnu slitlagi um Vatnsnes kosti um 3,5 milljarða króna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegurinn er reglulega í fréttum vegna þess hversu slæmur hann er og hvað hann veldur heimamönnum og ferðafólki miklum erfiðleikum. Bundið slitlag liggur frá hringveginum að Hvammstanga og fimm kílómetrum betur en þá eru 70 kílómetrar fyrir nesið að hringveginum á austanverðu nesinu.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Gunnar H. Guðmundsson, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Akureyri en hann segir að tekist hafi á undanförnum árum að hafa gott malarslitlag á veginum. Ekki verði þó við náttúruöflin ráðið. Umferðin sé þing og ómögulegt að halda veginum við í rigningartíð. Um 400 bílar fara um Vatnsnes á sólarhring á sumrin og er þetta með umferðarþyngstu malarvegum á landinu.
Vegagerðin telur ekki fært að takmarka umferð um veginn. Þá þyrfti að velja hverjir fengju að aka um hann og hverjum ætti að snúa frá. Gunnar segir í samtali við Morgunblaðið að eina varanlega lausnin sé að byggja veginn upp og leggja á tvöfalt slitlag. Þurfi að styrkja veginn, breikka í 6,5 metra, rétta úr hlykkjum og jafna hæðir og lægðir. Gróf kostnaðaráætlun bendir til að heildarkostnaður gæti orðið um 3,5 milljarðar króna. Framkvæmdin er ekki á samgönguáætlun ríkisins. Heimamenn eru að þrýsta á um að hann komi inn við endurskoðun áætlunarinnar sem lögð verður fyrir Alþingi nú í haust.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |