Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæplega 80 grömm af meintum kannabisefnum í söluumbúðum í gær. Tveir einstaklingar gistu fangageymslur vegna málsins en þeir voru stöðvaðir við akstur og mældist kókaín og kannabis í þvagi ökumannsins. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við leit en efnin voru vandlega falin í vélarými bifreiðarinnar, að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
Þar segir einnig að fíkniefnahundur lögreglunnar, ásamt lögreglumönnum, hafa haft í nógu að snúast frá því um síðustu helgi en þá hafi sex ökumenn verið stöðvaðir í akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Mál er varðaði vörslu ávana- og fíkniefna hafi verið fimm talsins. Þar hafi einnig verið haldlögð meint kannabisefni ætluð til sölu og vógu þau ríflega 60 grömm. Þau efni komu til vegna nokkurra húsleita og leitum í ökutækjum.
Á Facebook síðunni segir að fíkniefnamálum í embættinu hafi fjölgað gríðarlega og sé það verulegt áhyggjuefni.
Lögreglan minnir enn og aftur á fíkniefnasímann 800-5005, sem er gjaldfrjálst símanúmer, þar sem unnt er að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |