Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:30 0 0°C
Laxárdalsh. 07:30 0 0°C
Vatnsskarð 07:30 0 0°C
Þverárfjall 07:30 0 0°C
Kjalarnes 07:30 0 0°C
Hafnarfjall 07:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 25. janúar 2020 - kl. 07:10
Hans klaufi á Blönduósi og Hvammstanga

Leikhópurinn Lotta sýnir leikritið Hans klaufi í Félagsheimilinu á Hvammstanga mánudaginn 27. janúar klukkan 17:30 og í Félagsheimilinu á Blönduósi þriðjudaginn 28. janúar næstkomandi klukkan 17:30. Leikhópurinn er landsmönnum að góðu kunnur en hann hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið. Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú þriðja veturinn í röð komin inn í hlýjuna. Hópurinn setti Hans klaufa fyrst upp árið 2010, en nú tíu árum síðar, verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi.

Í auglýsingu segir að verkið hafi verið endurskrifað að stórum hluta og þó að sömu skemmtilegu persónurnar prýði það eins og fyrir tíu árum síðan, hafi nýjum ævintýrum og glænýjum lögum verið bætt við söguna.

„Þessi útgáfa af Hans klaufa er í raun alveg ný saga sem ekki er hægt að finna í gömlu ævintýrunum, þó vissulega beri hún þekkt nafn. Verkið er sannkölluð ævintýrablanda sem sækir mikið af efniviði sínum í sígildu ævintýrin okkar. Þannig munum við kynnast Öskubusku, stjúpsystrum hennar og prinsi sem breytt verður í frosk. Við munum stinga okkur á snældu, reyna að sofna með eina litla baun undir 100 ábreiðum og standa í háum turni og láta okkur vaxa hár sem nær alla leið niður á jörðina. Síðast en ekki síst munum við fylgjast með ævintýrum hins klaufalega Hans, Hans Klaufa. Sjón er sögu ríkari! Hittu Hans klaufa, Aron prins, Öskubusku og alla hina vini þína í Ævintýraskóginum í vetur.“

Hægt er að kaupa miða hér á sýninguna á Blönduósi. Á Hvammstanga ætlar foreldrafélag Grunnskóla Húnaþings vestra að greiða niður miðaverð um 1.400 krónur fyrir héraðsbúa. Hver og einn greiðir því 1.700 krónur við innganginn.

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið