Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:45 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:45 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:45 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:45 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:45 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:45 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fuglar eru hluti af daglegu lífi fólks, flestir eiga sinn uppáhalds fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur. Í vetur hafa staðfuglar og vetrargestir glatt landsmenn með nærveru sinni en nú nálgast vorið og farfuglarnir fara að tínast til Íslands. Fuglavernd ætlar að fagna vorkomunni með kosningu á Fugli ársins 2021 og verður sigurvegarinn kynntur með fjaðrafoki og látum á sumardaginn fyrsta.
Valdir verða 20 fuglar í framboð fyrir kosninguna sjálfa sem fram fer í apríl. En fólki hjá Fuglavernd er vandi á höndum því um 100 tegundir fugla ýmist búa hér allt árið eða hluta úr ári og allir eru þeir auðvitað stórkostlegir, hver á sinn hátt. Því leitar Fuglavernd hjálpar og biður fólk að tilnefna fugl sem því finnst eiga skilið að keppa um titilinn Fugl ársins 2021. Hægt er að finna eyðublað fyrir tilnefningar á vefnum www.fuglavernd.is. Opið er fyrir tilnefningar til 20. mars.
Fuglavernd hvetur líka þá sem brenna fyrir velgegni ákveðins fugls í keppninni til að sækja um stöðu kosningastjóra fyrir fuglinn og reyna að gefa honum byr undir báða vængi á samfélagsmiðlum og í heitu pottunum.
Keppnin er haldin til að vekja athygli á málefnum fugla í gamni og alvöru og er stefnt að því að hún verði árviss viðburður. Vefslóð Fugls ársins 2021: http://www.fuglavernd.is/fugl-arsins. Kassamerki: #FuglArsins2021 #Fuglavernd
Helstu tímasetningar varðandi keppnina
10.-20. mars - Tilnefningar á fuglum í lokakeppnina standa yfir.
Frá 10. mars - Opið fyrir umsóknir um stöðu kosningastjóra fugla.
1. apríl - Þeir 20 fuglar sem keppa munu um titilinn Fugl ársins 2021 verða kynntir.
9.-18. apríl - Æsispennandi kosning um Fugl ársins stendur yfir.
Sumardagurinn fyrsti 22. apríl - Fugl ársins 2021 kynntur með fjaðrafoki og látum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |