Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í fréttum Ríkisútvarpsins um helgina var fjallað um sameiningar sveitarfélaga og sagt frá því að í sumar og haust verði kosið um sameiningar í 11 sveitarfélögum, fjórum á Norðvesturlandi, tveimur á Norðausturlandi og fimm á Suðurlandi. Rætt er m.a. við Jón Gíslason, oddvita sveitarstjórnar Húnavatnshrepps, en hann er jafnframt formaður samstarfsnefndar um sameiningu í Austur-Húnavatnssýslu.
Hann segir að sameining sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu gangi út á að fylgja þróuninni, eitt sveitarfélag sé sterkara sameinað en fjögur sitt í hvoru lagi. Segir hann að auðvitað séu kostir og gallar við sameiningu eins og alla hluti.
„Það eru náttúrulega skólamálin sem eru alltaf viðkvæmust gagnvart sameiningu sveitarfélaga. Og í okkar tilfelli er verið að tala um að í framtíðinni yrðu Blönduskóli og Húnavallaskóli sameinaðir, sumir sjá kosti og aðrir sjá galla við það. Það er auðvitað það sem er viðkvæmast.“ Jón segir einnig að því fylgi öryggi fyrir börn að vera í sveitaskóla en á móti geti það haft ókosti í för með sér ef skólinn er afar fámennur.
Jón segir jafnframt að með sameiningu vonist sveitarfélögin til þess að ná eyrum ríkisvaldsins um betri samgöngur. „Brýnasta hagsmunamál dreifbýlisins á þessu svæði eru samgöngubætur. Við erum með mjög mikið af lélegum tengi- og héraðsvegum og sauðfjárrækt er mjög stór þáttur í okkar dreifbýli. Hún á undir högg að sækja um þessar mundir þannig að það er eitthvað annað sem þarf að koma til með og þá þarf fólk að geta komist leiðar sinnar. Krafan um samgöngubætur snýst hvort tveggja um öryggi og tíma en þó fyrst og fremst um að vegirnir séu bættir svo þeir verði ekki ófærir þegar verst lætur.“
Jón er spurður út í það hvað gerist er ef íbúar fella sameininguna?
„Það er náttúrulega seinni tíma mál, ég get ekki svarað fyrir það. Það er ekki mikið mál í rauninni að halda áfram með hluta af sveitarfélögunum, það er mikil vinna sem liggur að baki sameiningarvinnunnar og það er hægt að nýta sér hana áfram þó að færri sveitarfélög ætli að taka sig saman og kjósa aftur. Það er ekki flókið og yrði hægt að gera það þess vegna strax í haust ef að hitt gengi ekki,“ segir Jón í samtali við Ríkisútvarpið.
Sjá ítarlegri umfjöllun Ríkisútvarpsins hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |