Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:31 0 0°C
Laxárdalsh. 00:31 0 0°C
Vatnsskarð 00:31 0 0°C
Þverárfjall 00:31 0 0°C
Kjalarnes 00:31 0 0°C
Hafnarfjall 00:31 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Mynd: AST Norðurland vestar
Mynd: AST Norðurland vestar
Fréttir | 13. janúar 2022 - kl. 20:09
Fjörutíu og níu í einangrun á Norðurlandi vestra

Sextán ný kórónuveirusmit greindust á Norðurlandi vestra í gær og þar af voru sex utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á svæðinu. Alls eru nú 49 í einangrun á Norðurlandi vestra og 88 í sóttkví. Í gær greindust 1.101 með kórónuveiruna hérlendis og er það svipaður fjöldi og í fyrradag. Nýgengi innanlandsmita síðustu 14 daga á hverja 100.000 íbúa er nú komið yfir 4.000.

Sjá nánar á covid.is.

Höfðaskóli lokaður fram yfir helgi
Á vef Skagastrandar er athygli vakin á því að fimm smit eru á Skagaströnd og 19 íbúar í sóttkví. Brýnt er fyrir íbúum að sýna aðgát, reyna að takmarka samskipti við aðila utan heimilis eins og hægt er og halda áfram að sinna einstalingssóttvörnum. Mikilvægt er að huga að heilsu sinni og halda sig heima ef veikinda verður vart.

Viðbrögð sveitarfélagsins vegna staðfestra smita í samfélaginu:

1. Vegna staðfests smits í Höfðaskóla verða allir nemendur grunnskólans í úrvinnslusóttkví þar til frekari upplýsingar koma frá smitrakningarteyminu. Mikið álag er á rakningarteyminu og því verður skólinn lokaður bæði fimmtudag og föstudag.

Úrvinnslusóttkví: Meðan verið er að vinna að smitrakningu eru hópar nemenda og/eða starfsmanna sett í úrvinnslusóttkví. Í smitrakningu er verið að skoða hverjir hafa mögulega smitast af einhverjum sem er með Covid-19. Í úrvinnslusóttkví gilda sömu reglur og á við um sóttkví. Úrvinnslusóttkví gildir í innan við 48 klst.

2. Vegna útbreiðslu smita verður skrifstofa sveitarfélagsins lokuð frá og með fimmtudeginum 13. janúar þangað til annað verður tilkynnt.

3. Vegna útbreiðslu smita er lokað fyrir heimsóknir á Sæborg.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið