Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 6. júní 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Júní 2023
SMÞMFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829301
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:00 SSV 6 4°C
Laxárdalsh. 23:00 VSV 5 5°C
Vatnsskarð 23:00 V 3 4°C
Þverárfjall 23:00 VSV 3 4°C
Kjalarnes 23:00 NNV 3 6°C
Hafnarfjall 23:00 SSV 2 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
30. október 2022
Stutt hugleiðing um íslenskuna
Sumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana.
::Lesa

SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Ásgerði Pálsdóttur
05. júní 2023
50. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. júní 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. júní 2023
Eftir Eyjólf Ármannsson
29. maí 2023
Eftir Pétur Arason sveitarstjóra Húnabyggðar
26. maí 2023
49. þáttur: Eftir Jón Torfason
20. maí 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
18. maí 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
16. maí 2023
Maður og kona ehf. fékk viðurkenningu fyrir Shoplifter í Hrútey, sýninguna Boðflennu, eftir Hrafnhildi Arnarsdóttur.
Maður og kona ehf. fékk viðurkenningu fyrir Shoplifter í Hrútey, sýninguna Boðflennu, eftir Hrafnhildi Arnarsdóttur.
Fréttir | 14. janúar 2022 - kl. 16:19
Þrjú framúrskarandi verkefni fengu viðurkenningu SSNV

Í desember kölluðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eftir tilnefningum til fyrirmyndarverkefna á árinu 2021 á starfssvæði samtakanna. Annars vegar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og hins vegar á sviði menningarmála. Á vef SSNV kemur fram að fjölmargar tilnefningar hafi borist og eru íbúum á svæðinu þökkuð góð viðbrögð. Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum 11. janúar síðastliðinn að veita eftirtöldum verkefnum viðurkenningar:

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar

Brúnastaðir í Fljótum fyrir vinnslu geitaosta. Ostarnir frá Brúnastöðum eru einstakir og engum öðrum íslenskum ostum líkir. Þeir eru framleiddir úr úrvalsmjólk geita sem ganga í fjallasal Tröllaskagans, við ysta haf. Geiturnar á Brúnastöðum eru fóðraðar á hrati frá bruggverksmiðjunni Segli á Siglufirði sem annars væri fargað. Þannig taka þær þátt í hringrásarhagkerfinu. Þær fá ekki áborið hey heldur ilmandi úthaga töðu með stör og hrís. Mjólkin tekur bragð af þessari einstöku fæðu. Íslenskar geitur eru á válista vegna fæðar, þær eru einstakar á heimsvísu, upprunalegur stofn, aðlagaðar að veður- og gróðurfari Íslands í gegnum aldirnar. Með því að gera verðmætar afurðir úr geitamjólkinni er viðhaldið þessum einstaka stofni.

Á sviði menningarmála

Maður og kona ehf. fyrir Shoplifter í Hrútey, sýninguna Boðflennu, eftir Hrafnhildi Arnarsdóttur. Sýningin var metnaðarfull og vakti mikla athygli innanlands sem utan. Naut hún mikillar aðsóknar enda einstök á heimsvísu sem fyrsta útilistaverk þessa heimsþekkta listamanns. Með innsetningu á ýmiskonar gerviefni sem unnin eru með hefðbundinni textíl tækni skapaði listamaðurinn togstreitu milli þess raunverulega í landslaginu og þeirrar mjúku og lúmsku innrásar sem verkin hennar eru. Sýningin styrkti sérstöðu landshlutans á sviði sjónlista og hafði skýr tengsl við textílmenningu svæðisins.

Sögufélag Skagafjarðar fyrir Byggðasögu Skagafjarðar. Í Byggðasögu Skagafjarðar er í máli og myndum fjallað um allar bújarðir í Skagafirði sem hafa verið í ábúð frá árinu 1780 til dagsins í dag. Auk þess innihalda ritin upplýsingar um sveitarfélögin í firðinum og ýmsan annan fróðleik. Fyrsta bindið kom út árið 1999 og tíunda og síðasta bindið á árinu 2021. Um stórvirki er að ræða og óhætt að segja að Byggðasaga Skagafjarðar sé eitt viðamesta og metnaðarfyllsta verkefni í bókaútgáfu á Íslandi hin síðari ár. Einstakt er að héraðssaga sé skráð með þessum yfirgripsmikla hætti. Hjalti Pálsson var ritstjóri og aðal höfundur verksins.

Öll verkefnin hafa hlotið styrki úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands vestra.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið