September 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 15:30 | N 5 | 3°C |
Laxárdalsh. | 15:30 | NNA 7 | 4°C |
Vatnsskarð | 15:30 | ANA 5 | 2°C |
Þverárfjall | 15:30 | NNA 5 | 2°C |
Kjalarnes | 15:30 | 98.0 7 | 8°C |
Hafnarfjall | 15:30 | N 3 | 7°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Á vef Ríkisútvarpsins er fjallað um flottustu merki íþróttafélaga á Íslandi. RÚV fékk nokkra álitsgjafa til að skera úr um það og á meðal merkja sem fékk umfjöllun er merki Ungmennasambands Austur-Húnvetninga. Álitsgjafarnir, sem voru 15 talsins, voru beðnir um að raða upp tíu flottustu merkjunum að þeirra mati. Merkið í fyrsta sæti fær tíu stig, næst flottasta níu, og þannig koll af kolli þar til að tíunda sætið fær eitt stig. Býsna mörg merki fengu atkvæði en það var merki Knattspyrnufélags Reykjavíkur sem sigraði.
Meðal þeirra merkja sem álitsgjafarnir völdu úr var fjöldinn allur af ungmennasambandsmerkjum. Merki Ungmennafélags Austur-Húnvetninga skar sig úr fjöldanum og vakti mikla athygli hjá álitsgjöfum. Hér má lesa hvað álitsgjafarnir höfðu að segja um merkið:
Atli Fannar: (Toppsæti) „Merki sem kjarnar það sem íþróttir snúast um; gleði og sorg. Sólin sest í heiði á meðan ísbjarnafjölskylda rekur inn í eilífðina.“
Sigurbjörn Árni: „Birna með tvo húna sem rekur á ísjaka (væntanlega á Húnaflóa) inn í sólarlagið. Það er varla hægt að biðja um meiri rómantík í merki. Tengingin við íþróttir er kannski langsóttari.“
Jóhann Alfreð: „Undir geislum sólar stendur ísbjörn með tvo húna á litlum jakafleka sem virðist vera að bráðna undan þeim. Ekki veit ég hvenær merkið kom til sögunnar en sambandið var stofnað 1912. Hér hefur hönnuðurinn, sennilega langt á sinni samtíð, séð fyrir loftslagsvánna sem sækir að heimkynnum ísbjarnarins. Merki sem hvetur þig til umhugsunar. Svo er líka bara sterkt að flíka ísbjörnum.“
Elín Metta: „Þetta er kannski ekki fagurfræðilega besta merkið á Íslandi en það er karakter í þessu, það er verið að segja okkur sögu í þessu merki og ég virði það. Yfirleitt finnst mér skemmtilegt að sjá bláan og gulan saman, hefði viljað sjá þessa tvo liti njóta sín einhvern veginn betur. Þetta er saga um húna á vergangi með móður sinni, hún er falleg en hún er líka sorgleg því við vitum ekki hvað verður um þá. En það er von í þessari mynd, og hvað eru íþróttir annað en von?“
Lesa má nánar um flottustu merki íþróttafélaga á Íslandi á RÚV.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |