Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
Fyrirhuguð íbúðaruppbygging í Húnaþingi vestra er ætlað að mæta þörf sem kemur fram kemur í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Í henni er reiknuð út þörf fyrir íbúðahúsnæði út frá mannfjöldaspá til næstu 10 ára. Þrjár sviðsmyndir eru settar fram hvað þróun íbúafjölda varðar, lágspá, miðspá og háspá. Miðað við lágspá er gengið út frá því að árið 2033 verði íbúar í sveitarfélaginu 1314 talsins, eða u.þ.b. 70 fleiri en er í dag, miðað við þá sviðsmynd er íbúðaþörfin næstu 10 ár 39 íbúðir. Ef miðað er við miðspá er gert ráð fyrir að íbúar í sveitarfélaginu verði 1414 talsins og uppsöfnuð íbúðaþörf á því tímabili 87 íbúðir. Ef gengið er út frá háspá er gert ráð fyrir að íbúar verði 1514 árið 2033 og íbúðaþörfin þá 135 íbúðir.
Fyrsta húsnæðisáætlun Húnaþings vestra var unnin árið 2022. Þá gerði lágspá ráð fyrir 1229 íbúum árið 2024, miðspá gerði ráð fyrir 1270 íbúum en háspá 1290. Íbúar 1. apríl skv. Þjóðskrá voru 1243 sem er á milli lágspár og háspár. Á milli áranna 2019 og 2023 fjölgaði íbúum í Húnaþingi vestra um 4% meðan íbúum í landshlutanum fjölgaði um 1,3% á sama tímabili skv. tölum Hagstofunnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |