Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 8. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:03 0 0°C
Laxárdalsh. 01:03 0 0°C
Vatnsskarð 01:03 0 0°C
Þverárfjall 01:03 0 0°C
Kjalarnes 01:03 0 0°C
Hafnarfjall 01:03 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Nöldrið | 03. febrúar 2016 - kl. 08:45
Febrúarnöldur

Vel tókst til hjá lesendum Húnahorsins við val á manni ársins 2015 í Austur-Húnavatnssýslu. Róbert Daníel Jónsson er vel að þessum titli kominn. Hann hefur ljósmyndað ótal staði í sýslunni sem við, sem höfum búið hér helmingi lengur en hann, höfum kannski aldrei augum litið eða talið neitt sérsaka og kveikt þar með áhuga okkar á að heimsækja þessa staði sem margir hverjir eru við túfótinn hjá okkur. Þá hef ég séð ótúlega fallegar myndir héðan úr bænum eftir hann. Það má heldur ekki gleyma hans aðalstarfi í íþróttamiðstöðinni, þar sem hann kemur alúðlega fram við alla, unga og gamla. Innilega til hamingju Róbert Daníel og gangi þér allt í haginn.

Þeir slá okkur við í mennigarlífinu nágrannar okkar í vestur-sýslunni. Þeir hafa nýlega storfnað Menningarfélag Húnaþings vestra, sem á að stuðla að og styðja við hverskonar menningarstarfsemi í héraðinu. Þeir hafa þó á seinni árum verið ólíkt duglegri en við þegar kemur að allskonar tónleikahaldi og öðrum skemmtilegum uppákomum bæði heimamanna og aðkominna skemmtikrafta. Það er sama hvort maður hlustar á, eða les um uppbyggingu ferðaþjónustu, þá er alltaf komið inn á mikilvægi menningar hvers konar á viðkomandi stöðum. Hvað hún byggi upp samfélagið og laði að gesti.  Hér hjá okkur er ekki lagt mikið upp úr þessum þætti því miður. Til dæmis var síðasti fundur menningarnefndar bæjarins haldinn 31. ágúst 2015, að því er ég best veit. Ég ætla ekki að segja að uppgangur Selasetursins á Hvammstanga sé alfarið menningu staðarins að þakka, en hún hefur áreiðanlega ekki skemmt fyrir.  Á síðasta ári sóttu Selasetrið rúmlega 27 þúsuns manns. Geri aðrir betur.

Við búum hér í blómlegu landbúnaðarhéraði. Hér er eitt af bestu svæðum landsins til sauðfjárræktunar og hér er eitt afurðahæsta kúaabú landsins. En eru nokkurs staðar seldar hér afurðir beint frá býli, eða nokkuð um heimavinnslu matvæla ætlaða til sölu eins og svo víða á landinu? Hér á Blönduósi var ekkert handverkshús rekið s.l. sumar, þó þau virðist ganga ár eftir ár allt í kringum okkur. Það var því gleðileg frétt sem kom um konurnar sem nú vilja blása til sóknar og hefjast handa á framleiðslu og sölu á heimaunnum matvælum hverskonar, handverki og fleiru. Gangi ykkur vel og munið að ef konurnar geta það ekki, þá getur það enginn.

Þorrablót Vökukvenna sem árlega er haldið fyrsta laugardag í þorra brást ekki  vonum manna frekar en fyrri daginn. Maturinn, framleiddur í heimabyggð og framreiddur af alúð og smekkvísi, var ljúffengur að vanda og skemmtiatriðin sprenghlægileg, frábær skemmtun. Ekki má gleyma Trukkunum, hljómsveit úr heimabyggð sem stóð sig vel eins og við var að búast. Bestu þakkir fyrir frábært kvöld.

Nú  lengist sólargangur og myrkrið hörfar og bráðum verður komið vor. Í sex mánuði hafa bíldruslurnar á planinu við B&S restaurant „glatt“ þá sem fara um þjóðveg 1. Nú er þarna ekki lengur bílaverksæði, væri nú ekki ráð að fjarlægja draslið svo aðkoman í bæinn liti aðeins betur út.

Við skulum þreyja þorrann og góuna eins og gamla fólkið sagði og taka glöð á móti því sem eftir er af snjó og kulda þennan veturinn. Hann er víst ekki alveg búinn.

Kveðja Nöldri.

Höf. Nöldri
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 16:06
Húnabyggð ráðgerir að götur og gangstéttir verði sópaðar mánudag 13. maí næstkomandi. Biðlað er til íbúa að hreinsa bílastæði við hús sín og færa bíla og önnur farartæki af götum svo hægt sé að sópa allar götur og gangstéttir.
Glaðheimar
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 10:39
Sveitarfélagið Skagaströnd hvetur til umhverfis- og plokkdags á Skagaströnd fimmtudaginn 9. maí. Fólk er hvatt til að plokka eða snyrta sitt nærumhverfi svo sem að sópa stéttir eða plön. Gámar verða sunna við Oddagötu 12 og á stígnum meðan við Bankastræti. Pylsur verða grillaðar við Bjarmanes klukkan 13 og eru allir velkomnir.
Pistlar | 07. maí 2024 - kl. 10:35
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Í augum Guðs ert þú ekki mistök. Ekki einhver lítils verður fánýtur einstaklingur eða eins og hvert annað óhapp, misheppnaður aðskotahlutur eða slys. Heldur eilífðar verðmæti. Þú ert eins og ljóð sem hann hefur ort og er að yrkja með þér frá degi til dags. Ástarljóð, óður til lífsins. Ljóð sem ætlað er að bera birtu og yl inn í aðstæður þeirra sem á vegi þínum verða. Já, allra þeirra sem þarf að uppörva og herða.
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 06:23
Haldin verður hópslysaæfing í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra á laugardaginn. Æfingin fer fram ofan við Blönduós, á gatnamótum Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar. Ennisbraut verður því lokuð við Mýrarbraut og Þverárfjallsveg frá klukkan 11 og fram eftir degi. Reikna má með að bifreiðum sem ætlaðar eru til neyðaraksturs verði ekið með forgangsmerkjum á þessum tíma um Ennisbraut og Húnabraut að fjöldahjálparstöð og söfnunarsvæði slasaðra sem verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Laxveiði í Blöndu
Laxveiði í Blöndu
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 15:10
Laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafa verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 og til og með sumrinu 2029 með almennu útboði.
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:55
Tekinn hefur verið í notkun einstaklingsbúningsklefi í Íþróttamiðstöðinni Hvammstanga og er hann staðsettur við hlið gufuklefans. Aðstaðan hentar þeim fjölbreytta hópi sem vill og þarf að hafa fataskipti í einrúmi, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að uppsetning búningsaðstöðunnar sé í samræmi við jafnréttisáætlun sveitarfélagsins en þar kemur fram að aðstaða í skólum og íþróttamiðstöð skuli henta þörfum ólíkra hópa.
Kálfshamarsvík
Kálfshamarsvík
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:48
Sveitarstjórn Skagabyggðar varð fyrir miklum vonbrigðum með nýlega úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið sendi inn tvær umsóknir, annars vegnar vegna hönnunar á Kálfshamarsvíkursvæðinu og hins vegar vegna verndun Kálfshamarsvíkur. Aðeins var úthlutað til hluta þess síðar nefnda og nam hún 3,6 milljónum en sótt var um rúmar 6,7 milljónir.
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:30
Höskuldur Birkir Erlingsson hefur frá árinu 2002 haldið utan um rjúpnatalningu við Blönduós. Ávallt hefur verið talið um mánaðamótin apríl/maí og karrar eingöngu taldir. Samkvæmt nýjustu talningu er rjúpum að fjölga en 91 rjúpa var talin að þessu sinni og er það 25% fjölgun frá fyrra ári. Frá árinu 2021 er fjölgunin 168%. Svæðið sem talið var á afmarkast af Svínvetningabraut og niður með Laxá á Ásum, að þjóðvegi 1 og svo niður að Blönduósi.
Mynd: Auðunn Blöndal
Mynd: Auðunn Blöndal
Pistlar | 06. maí 2024 - kl. 13:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Kornin atarna eiga að minna okkur á aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings kl. 15 á miðvikudaginn í Bóka- og héraðsskjalasafninu Blönduósi. En hér koma þó við sögu, Fjallaskáld og Þórunn sagnfræðingur og rithöfundur sem hefur nýlega skrifað bókina Bærinn brennur um bæjarbruna og morð á Illugastöðum 1828.
Tilkynningar | 06. maí 2024 - kl. 11:54
Frá Birni Þór og Söndru
Fimmtudaginn 9. maí milli klukkan 18:00 og 20:00 langar okkur á B&S Restaurant að bjóða ykkur upp á fiski hlaðborð og meðlæti (frítt en frjálsframlög eru þegin og renna þau til Blönduóskirkju vegna viðhalds og uppsetningu á salernum fyrir fatlaða). Ef þið hafið EKKI áhuga að þiggja þetta boð okkar vinsamlegast hafið samband í síma 898 4685 og afpantið.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:25
Kormákur Hvöt hóf leik í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í dag. Mótherjinn var Selfoss og fór leikurinn fram á Jáverk-vellinum á Selfossi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Staðan í hálfleik 0-0. Selfoss náði að skora eina mark leiksins í seinni hálfleik og var það eiginlega gegn gangi leiksins. Kormákur Hvöt fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 1-0 fyrir Selfoss.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:22
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 6 íbúða raðhúss við Flúðabakka á Blönduósi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar í haust. Um er að ræða fyrri áfanga að þessu verkefni en síðar er stefnt að því að byggja þriggja íbúða raðhús á sama reitnum.
Tilkynningar | 04. maí 2024 - kl. 17:05
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 13. maí klukkan 18:00 á Apotekarastofunni Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A.-Hún. sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 11:10
Opinn fundur um Prjónagleðina, sem fram fer helgina 7.-9. júní í sumar, verður haldinn í Ỏsbæ mánudaginn 6. maí klukkan 17. Í auglýsingu um fundinn segir að Húnabyggð taki að þessu sinni beinan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og leggi metnað sinn í að viðburðurinn verði líflegur og áhugaverður fyrir gesti og heimafólk.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið