Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Starfshópur smærri sveitarfélaga á Íslandi hefur sent umhverfis- og samgöngunefnd umsögn vegna frumvarps samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem m.a. kveður á um að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags verði 1.000 íbúar. Í henni er lögð fram tillaga um að frekar verði horft til styrkleika sveitarfélaga fremur en lágmarksfjölda íbúa þegar kemur að umræðu um hugsanlega sameiningu. Sveitarfélagið Skagaströnd tekur heilshugar undir tillögu starfshópsins.
Tillagan var unnin í framhaldi af landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var 18. desember síðastliðinn. Þar lögðu fulltrúar 20 minni sveitarfélaga fram aðra tillögu m.a. um að fallið yrði frá íbúalágmarki en hún var felld. Tillagan sem fram kemur í umsögninni er sögð tilraun til að ná sátt um þetta umdeilda mál og að unnið hafi verið að henni um nokkurn tíma.
Í henni er lagt til að ákvæði verði sett í lögin, í stað ákvæðis um lágmarksfjölda íbúa, sem segir að afloknum sveitarstjórnarkosningum og eigi síðar en sex mánuðum eftir þær, skuli sveitarstjórn taka til umræð og meta hvort ástæða sé til að sveitarfélagið sameinist öðru eða öðrum sveitarfélögum. Horfa beri þá til fjárhagslegra þátta, þjónustu, félagslegra þátta og annarra þátta sem sveitarstjórn kunni að telja mikilvæga. Sé það mat sveitarstjórnar að rétt sé að skoða sameiningu við annað eða önnur sveitarfélög hefjist viðræðuferill. Nánar um efni tillögunnar má sjá hér.
Með tillögunni fylgir greinargerð, í henni er m.a. rakið hvernig hún fellur vel að þeim lagaramma sem fyrir er, sem og stefnumótun um eflingu sveitarfélaga. Það er von minni sveitarfélaga að tillagan megi verða til þess að Alþingi og sveitarfélög nái saman um hið mikilvæga mál að efla sveitarfélög og styrkja, en án þess þó að vikið sé frá grunnreglum um lýðræði og sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |