Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:01 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:01 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:01 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:01 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:01 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:01 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á sveitarstjórnarfundi Húnavatnshrepps í vikunni var lögð fram skýrsla vegna stefnumörkunar ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Skýrslan var unnin í samstarfi við Björn H. Reynisson og í henni eru margar áhugaverðar tillögur eins og uppbygging á útsýnisstað á Þrándarhlíðarfjalli, lýsing og bætt aðgengi að Hvammsfossi, uppbygging við Gullstein, útsýnispallur við Auðkúlurétt og gönguleið meðfram ströndinni frá Blönduósi að Þingeyrum og þaðan að Hvítserk.
Skýrsluna má lesa hér. Í henni er gerð innviðagreining á því hvað er í boði í Húnavatnshreppi í dag. Síðan eru settar fram tillögur um forgangsröðun verkefna og tillögur að markaðsaðgerðum. Þau verkefni sem lögð verður áhersla á í sveitarfélaginu næstu tvö árin eru Þrístapar, Gullsteinn, fossinn Mígandi í Vatnsdal, Ólafslundur, Vatnsdæla saga, Þrándarhlíðarfjall og Þingeyrar.
Sótt um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Á sveitarstjórnarfundinum kom einnig fram að Húnavatnshreppur hefur sótt um styrki fyrir sjö verkefni úr Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Sex af þeim varðar framkvæmdir og eitt er vegna undirbúnings og hönnunar. Verkefnin eru:
- Hvammfoss í Vatnsdal, uppbygging gönguleiðar, bifreiðaplan, lýsing á fossi o.fl.
- Gullsteinn, lagfæring á bifreiðaplani, gönguleið að Gullsteini, smíði á krossi, rafmagnsvæðing o.fl.
- Minnisvarði um Bríet Bjarnhéðinsdóttur, Haukagili, frágangur á umhverfi o.fl.
- Vatnsdæla saga, endurnýjun á skiltum, lagfæring og merkingar á gönguleiðum, QR kóðavæðing á sögunni o.fl.
- Þrístapar, uppsetning á alsjálfvirku salerni.
- Ólafslundur, uppsetning á alsjálfvirku salerni.
- Þrándarhlíðarfjall, hönnun á útsýnispalli ofan á núverandi endurvarpsstöð, merkingar o.fl.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |