Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 7. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:19 0 0°C
Laxárdalsh. 00:19 0 0°C
Vatnsskarð 00:19 0 0°C
Þverárfjall 00:19 0 0°C
Kjalarnes 00:19 0 0°C
Hafnarfjall 00:19 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MN og Pétur “skarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MN og Pétur “skarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Fréttir | 21. desember 2021 - kl. 09:36
Samstarf Íslandsstofu og Markaðsstofa um markaðssetningu á áfangastaðnum Íslandi

Íslandsstofa og Markaðsstofur landshlutanna hafa skrifað undir samninga um samvinnu við erlenda markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Íslandsstofa og Markaðsstofurnar hafa unnið náið saman um árabil en nú hefur samstarfið verið formgert í samræmi við skilgreint hlutverk nýrra áfangastaðastofa sem Markaðsstofurnar sinna í sínum landshlutum. Samningurinn er til þriggja ára frá 2021 til og með 2023.

„Markaðssetning á áfangastaðnum Íslandi er samvinnuverkefni,“ segir Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu í tilkynningu. „Ísland hefur undanfarin ár markað sér stöðu sem þekktur áfangastaður en það hefur ekki gerst af sjálfu sér og við erum í stöðugri samkeppni við aðra áfangastaði. Árið um kring vinnur fjöldi fólks að því að vekja athygli á Íslandi til að skapa viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum í öllum landshlutum. Við erum lítil í stóra samhenginu en með því að leggja saman krafta okkar náum við slagkrafti og þessir samningar eru liður í að efla gott samstarf.“

Í tilkynningunni kemur fram að unnið er eftir stefnumótun stjórnvalda um að tryggja sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu um allt land í krafti gæða og fagmennsku og að Ísland verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030. Meðal verkefna eru upplýsingamiðlun, samskipti við fjölmiðla og áhrifavalda, ráðgjöf um efni á vef og markaðsverkefni, uppbygging á sameiginlegum myndabanka og fleira.

„Markaðsstofur landshlutanna hafa unnið í þéttu samstarfi við Íslandsstofu síðastliðin ár með áherslu á erlenda markaðssetningu,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands fyrir hönd Markaðsstofanna. „Með því að formgera samstarfið og setja fjármagn í verkefnin verður slagkrafturinn aukinn til muna. Það er því mikið fagnaðarefni að stíga þetta skref og hlökkum við á Markaðsstofunum til að vinna sameiginlega að markaðssókn fyrir landið allt.“

Í tengslum við samningana heimsóttu fulltrúar Íslandsstofu alla landshlutana til að hitta hagsmunaaðila og kynna sér starfsemi og stöðu ferðaþjónustunnar. Markaðsstofurnar stilltu upp dagskrá og sáu um leiðsögn um sína landshluta.

Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir til þess að auka útflutningstekjur og hagvöxt. Meðal hlutverka Íslandsstofu er að leiða og hafa yfirsýn yfir ímyndar-, kynningar- og markaðsstarf fyrir Ísland sem áfangastað; sinna greiningarvinnu og miðlun gagna; efla og viðhalda viðskiptatengslum á erlendum mörkuðum; og vera gátt að Íslandi sem áfangastað. Markaðsstofur landshlutanna sinna álíka hlutverki hver fyrir sinn landshluta. Þar er skilgreind sérstaða og áherslur í innviðauppbyggingu og markaðsmálum fyrir hvert svæði og sett fram í áfangastaðaáætlun. Markaðsstofurnar gegna því mikilvægu hlutverki við að miðla upplýsingum og markaðsefni frá sínu svæði til Íslandsstofu og veita ráðgjöf ásamt því að taka þátt í ýmsum markaðsverkefnum á grundvelli þessa samnings.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið