Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:04 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ég fagna því að innviðaráðherra skuli sýna því áhuga að setja Blönduósflugvöll á næstu samgönguáætlun eins og þegar hefur verið lagt upp með af t.d. Vilhjálmi Árnasyni og Jóni Gunnarssyni í nefndaráliti frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar. Við munum fylgja því ötullega eftir að það verði gert þegar kemur að gerð nýrrar samgönguáætlunar líkt og ég og fleiri höfum gert undanfarin ár. Því eins og allir sem vilja vita hafa endurbætur á flugvellinum verið mitt hjartans mál síðustu ár og mikið áunnist. Og þar sem allir hafa viðurkennt öryggisþáttinn og mikilvægið þá bara skil ég ekki afhverju málið er ekki unnið hraðar en raun ber vitni.
Eftirfarandi erindi sem ég hef talað fyrir má finna á minnisblaði sameiningarnefndar sem kynnt var fyrir ráðherrum og þingmönnum í aðdraganda sameiningarkosninga, síðast á fundi með innviðaráðherra þann 27.janúar síðastliðinn.
https://www.hunvetningur.is/is/hagnytar-upplysingar/minnisblod-samstarfsnefndar-2022
https://www.hunvetningur.is/static/files/Minnisblod/minnisblad-um-hunvetning-ii_27012022.pdf
“Bundið slitlag á Blönduósflugvöll
Mikil umferð um þjóðveg 1 kallar á að viðbúnaður sé til staðar til að bregðast við slysum. Blönduósflugvöllur er eini flugvöllurinn á svæðinu milli fjallveganna um Holtavörðuheiði og Þverárfjall/Vatnsskarð og gegnir því mikilvægu hlutverki sem sjúkraflugvöllur þegar færð um fjallvegi spillist og þegar hver mínúta skiptir máli fyrir slasaða eða sjúka einstaklinga. Bundið slitlag og traust undirlag er forsenda þess að flugvöllurinn sé nothæfur þegar á þarf að halda og að öryggi flugáhafna og farþega sé tryggt sbr. niðurstöður og tillögur starfshóps um öryggi flugvalla og lendingarstaða frá nóvember 2021.”
svo ef fólk vill kynna sér aðdraganda og upphaf þessar vegferðar þá eru ýmsar upplýsingar sem má skoða ef vilji er til.
úr fundargerð byggðaráðs 27.02.2020
8.Blönduósflugvöllur - Minnispunktar vegna úttektar ISAVIA á ástandi Blönduósflugvallar
2002025
Drög frá ISAVIA varðandi endurbætur og ástand flugvallarins.
Byggðaráð fór yfir punkta frá ISAVIA er varða Blönduósflugvöll. Byggðaráð ítrekar mikilvægi flugvallarins og skorar á Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að veita verkefninu 7.000.000 króna til þess að unnt verði að uppfylla kröfur um lágmarksaðbúnað á flugvellinum sem allra fyrst. Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
Og svo nota ég orðalag RÚV í restina “Athugið fréttin er gömul”
Kynnum okkur málin – verum upplýst – vinnum þetta áfram! X-D
Með bestu kveðjum inní nýja viku
Guðmundur Haukur Jakobsson oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |