Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 7. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:58 0 0°C
Laxárdalsh. 08:58 0 0°C
Vatnsskarð 08:58 0 0°C
Þverárfjall 08:58 0 0°C
Kjalarnes 08:58 0 0°C
Hafnarfjall 08:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 06. maí 2022 - kl. 09:12
Íslandsbankasala fjármálaráðherra er ólögleg
Eftir Eyjólf Ármannsson

Árið 2012 setti Alþingi lög um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Fjármálaráðherra fær þar m.a. heimild til að selja Íslandsbanka, að fenginni heimild í fjárlögum. Flokkur fólksins var eini flokkurinn á Alþingi sem var á móti sölunni á Íslandsbanka.

Fjármálaráðherra selur Íslandsbanka, enginn annar. Hann tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað og undirritar samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignarhlutarins, líkt og segir í lögunum. Hann ber ábyrgð á sölunni.

Fjármálaráðherra er m.a. vanhæfur til að selja föður sínum hlut í bankanum. Það er brot á vanhæfisreglum stjórnsýslulaga, sem kveða á um vanhæfi vegna skyldleika.

Lögin um söluna kveða á um að Bankasýslan annist sölumeðferð eignarhluta fyrir hönd ríkisins í samræmi við ákvörðun ráðherra. Þegar tilboð í eignarhlut liggja fyrir skal Bankasýslan skila ráðherra rökstuddu mati á þeim.

Fyrir útboðið gerði Bankasýslan sölusamning við söluráðgjafa, sem byggist á stöðluðu samningsformi og gilda um hann ensk lög. Samkvæmt samningnum skulu allar deilur aðila fara fyrir gerðardóm í London. Ríkið gæti því farið í mál vegna samningsins í mál við sjálfan sig fyrir gerðardómi í London, en Landsbanki og Íslandsbanki eru aðilar að samningnum. Erlend löggjöf kann að gilda um réttarsamband erlendra umsjónaraðila og söluráðgjafa við eigin viðskiptavini. Þó samningurinn sé á stöðluðu formi gat íslenska ríkið auðveldlega gætt hagsmuna sinna. Slíkt er alvanalegt en það virðist ekki hafa verið gert. Engu er líkara en að einkaaðilar hafi verið að semja sín á milli um sölu á hlutabréfum í einkabanka en ekki í ríkisbankanum Íslandsbanka, þar sem sérstök lög gilda um söluna auk stjórnsýslulaga.

Bankasýslan samdi við þrjá erlenda og fimm innlenda söluráðgjafa, þar á meðal Landsbanka og Íslandsbanka. Átta starfsmenn Íslandsbanka eða einstaklingar þeim tengdir keyptu í bankanum. Íslandsbanki var söluráðgjafi í umboði Bankasýslunnar og innti af hendi störf sem fjármálaráðherra bar sem seljandi ábyrgð á. Kaup starfsmanna Íslandsbanka standast því ekki vanhæfisreglur stjórnsýslulaga.

Við söluna var ekki kveðið á um vanhæfi tilboðsgjafa samkvæmt stjórnsýslulögum. Engar kröfur voru til kaupenda aðrar en þeir væru fagfjárfestar, sem þurfa að uppfylla tvö af þremur skilyrðum; a) haft viðskipti á markaði sl. ár, að meðaltali tíu sinnum á ársfjórðungi; b) átt meira en 500.000 evrur; c) starfað í fjármálageiranum sem krefst þekkingar á viðskiptunum.

Tilboðsgjöfum voru ekki sett nein sjálfstæði skilyrði sem voru sanngjörn og um að þeir nytu jafnræðis. Mikilvægt er að jafnræðis sé gætt milli þeirra sem koma til greina sem mögulegir kaupendur að eignarhlut svo að allir líklegir kaupendur hafi jafna möguleika á því að gera tilboð. Jafnræði verður best tryggt með því að skilyrði við sölu séu fá, skýr og öllum ljós. Söluráðgjafar seldu fagfjárfestum af viðskiptamannalistum sínum. Kaupendahópurinn var því minni en kröfur sögðu til um. Eftir söluna var spurt í hverja var hringt.  Reynt var að halda upplýsingum um smáfjárfestana leyndum með vísan til persónuverndarlaga og jafnvel bankaleyndar, þrátt fyrir skýra nauðsyn um almannahagsmuni og kröfu um gegnsæi í lögum um söluna.    

Meginreglur um sölumeðferðina í sölulögunum kveða á um að áhersla skuli lögð á opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni. Með hagkvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs fyrir eignarhluti. Þess skal gætt að skilyrði sem tilboðsgjöfum eru sett séu sanngjörn og að þeir njóti jafnræðis. Þá skal kappkosta að efla virka og eðlilega samkeppni á fjármálamarkaði. Ekkert af þessu var virt.

Íslandi sem samfélagi hefur ekki tekist að skapa þróað nútímafjármálakerfi. Salan á Íslandsbanka sýnir að lærdómurinn af Hruninu 2008 og einkavæðingu bankanna 2003 virðist enginn. Vanræksla, fúsk og prinsippleysi klíkusamfélagsins er enn allsráðandi. Ekki hefur heyrst orð frá háskólasamfélaginu eða fjármálamarkaðnum um söluna. Þrátt fyrir ný lög hefur í raun ekkert breyst. Þess vegna á rannsóknarnefnd Alþingis að rannsaka Íslandsbankasöluna án tafar.

Höfundur er þingmaður fyrir Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi og 2. varaformaður fjárlaganefndar.

Lögfræðingur og LL.M. í fjármálarétti frá University of Pennsylvania. Löggiltur verðbréfamiðlari og hefur starfað hjá Fjármálaeftirlitinu, efnahagsbrotadeild og norrænu bönkunum DNB og Nordea.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið