Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 30. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:15 0 0°C
Laxárdalsh. 01:15 0 0°C
Vatnsskarð 01:15 0 0°C
Þverárfjall 01:15 0 0°C
Kjalarnes 01:15 0 0°C
Hafnarfjall 01:15 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 78 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
15:37 05. jún. 2023   Fyrstu laxarnir veiðast í Blöndu
Laxveiði hófst í Blöndu í morgun. Fyrsti laxinn kom á land þegar nokkuð var liðið á morguninn en það var veiðimaðurinn Þorsteinn Stefánsson sem fékk hann sunnanmegin á Breiðunni. Laxinn var ekki stór og telst vera smálax sem er talið vita á gott fyrir sumarið, að hann sé mættur snemma í ána. Nokkru seinna landaði Sveinbjörn Stefánsson 83 sentímetra langri hrygnu, sem kalla má ekta Blöndulax.
15:10 05. jún. 2023   Argentínumaður til Kormáks Hvatar
Kormákur Hvöt ætlar sér stóra hluti í 3. deildinni í sumar og er liðið enn að styrkja sig í baráttunni. Nýverið var gerður samningur við 29 ára gamlan argentínskan miðjumann, Nicolas de Vito en hann kemur til liðsins frá Ítalíu. Á facebookaðdáandasíðu Kormáks kemur fram að hann hafi ungur verið viðloðandi unglingalandslið Argentínu og að hann sé vinnuhestur sem geti dreift boltanum þvers og kruss enda jafnvígur á báða fætur.
13:51 05. jún. 2023   Stjórnsýsluverkefni Innheimtustofnunar til sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga, þar á meðal innheimta meðlaga, munu færast til ríkisins frá og með 1. janúar 2024. Í lok síðustu viku samþykkti Alþingi lagafrumvarp innviðaráðherra um breytingar á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra á Blönduósi mun taka að sér stjórnsýsluverkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga, en sýslumenn eru innheimtumenn ríkissjóðs.
11:47 05. jún. 2023   Söfnun á rúlluplasti í Húnabyggð
Tilkynning frá Húnabyggð
Bændur sem óska þess að nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um láta vita á netfangið plast@hunabyggd.is seinasta lagi 6. júní.
10:26 05. jún. 2023   Safnar Silver Cross barnavögnum
Um sjómannadagshelgina á Skagaströnd voru Silver Cross barnavagnar til sýnis í kjallaranum á Bjarmanesi, sem Helena Mara Velemir hefur safnað og skrifað sögu hvers og eins. Vagnarnir eru 13 talsins sem Helena á eða hefur fengið að láni hjá fólki á staðnum. Vísir.is segir frá þessu og haft er eftir Helenu að hún hafi lengi haft áhuga á Silver Cross barnavögnum og vissi að það væri til mikið af þeim í geymslum á Skagaströnd.
09:16 05. jún. 2023   Frá félagi eldri borgara í Húnaþingi
Síðustu forvöð að skrá sig í blóma- og skoðunarferðina 8. júní, eru til mánudagskvölds 5. júní.
Stefnt er að "sumarblómaferð" að Reykjum í Hrútafirði fimmtudaginn 8. júní næstkomandi ef þáttaka næst. Farið verður frá Hnitbjörgum klukkan 11:30. Farið verður fyrst í Gróðurhúsið á Reykjum og síðan verður farið í Leirhús Grétu á Litla Ósi, en þar er margt fallegra muna. Síðan myndum við fá okkur hressingu á heimleiðinni.
17:35 04. jún. 2023   Fornleifarannsókn hafin á Höfnum á Skaga
Fornleifarannsókn hófst á dögunum á Höfnum á Skaga þar sem stór verstöð var á miðöldum. Ýmsir forvitnilegir gripir hafi komið í ljós við rannsóknina eins og gnótt hvalbeina. Fornleifafræðingur bindur vonir við að fleiri gripir eigi eftir að koma í ljós á næstu vikum. Sagt er frá þessu á vef Ríkisútvarpsins.
10:35 04. jún. 2023   Sumaropnun Heimilisiðnaðarsafnsins 2023
Um þessar mundir eru 20 ár síðan hið nýja safnhús Heimilisiðnaðarsafnsins var tekið í notkun vorið 2003. Sumaropnun safnsins hófst þann 1. júní og stendur til 31. ágúst. Safnið er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00. Þótt safnið sé ekki formlega opið á öðrum tímum ársins er oft á tíðum óskað eftir móttöku hópa, ekki síst vor og haust. Má nefna að nú í apríl og maí mánuðum einum var tekið á móti um 300 gestum.
10:30 04. jún. 2023   Snyrtidagur í kirkjugarðinum
Frá stjórn
Á stjórnafundi Kirkjugarðs Blönduóss, sem haldin var 31. maí síðastliðinn, var samþykkt að hinn árlegi dagur snyrtimennskunnar í garðinum verði sunnudaginn 11. júní frá klukkan 12:00 til 16:00. Umsjónamaður garðsins ásamt stjórnafólki sem á heimagengt verður á staðnum og aðstoðar fólk ef óska er eftir því, annars erum við vön að finna okkur verkefni við þetta tækifæri.
09:53 04. jún. 2023   Fimmtíu þættir úr sögu Torfalækjarhrepps
Í rúm tvö ár hefur Jón Torfason birt greinar á Húnahorninu undir heitinu Þættir úr sögu sveitar þar sem hann fjallar um íbúa í Torfalækjarhreppi sem bjuggu þar frá lokum 18. aldar og til fyrri hluta 19. aldar. Þá voru í hreppnum 20 jarðir og auk húsbænda var þar margt vinnufólk og húsfólk. Í þáttunum er saga þessara jarða og þess fólks sem þar lifði rakin lítillega. Íbúar sveitarinnar tengdust á ýmsa vegu og reynir Jón að draga sitthvað fram um samskipti fólks en margt er þó óvíst um tengsl einstakra manna og kvenna. Í dag birtir Jón fimmtugasta þáttinn sem fjallar um Jón á Húnsstöðum.
17:42 03. jún. 2023   Sigur í fyrsta leik á Blönduósvelli
Kormákur Hvöt tók á móti Hvíta riddaranum á Blönduósvelli í dag þegar leikið var í 5. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla 3. deild. Leikurinn var sá fyrsti í sumar á Blönduósvelli og fór það sérlega vel í leikmenn, þ.e. heimamenn. Rétt áður en flautað var til hálfleiks skoraði Sigurður Bjarni Aadnegard gott mark fyrir Kormák Hvöt og þannig stóðu leikar í hálfleik 1-0.
16:45 03. jún. 2023   Merki USAH fékk verðskuldaða athygli
Á vef Ríkisútvarpsins er fjallað um flottustu merki íþróttafélaga á Íslandi. RÚV fékk nokkra álitsgjafa til að skera úr um það og á meðal merkja sem fékk umfjöllun er merki Ungmennasambands Austur-Húnvetninga. Álitsgjafarnir, sem voru 15 talsins, voru beðnir um að raða upp tíu flottustu merkjunum að þeirra mati. Merkið í fyrsta sæti fær tíu stig, næst flottasta níu, og þannig koll af kolli þar til að tíunda sætið fær eitt stig. Býsna mörg merki fengu atkvæði en það var merki Knattspyrnufélags Reykjavíkur sem sigraði.
09:14 03. jún. 2023   Sjómannadagurinn á Hvammstanga
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur Hvammstanga sunnudaginn 4. júní. Hátíðardagskráin hefst með messu klukkan 13 á Bangsatúni. Sóknarprestur, organisti og kirkjukór Hvammstanga syngja messu undir bláhimni. Klukkan 13:45 verður blómsveigur lagður að minnismerki um drukknaða sjómenn. Klukkan 14 hefst leikjastund á Bangsatúni.
09:08 03. jún. 2023   Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu þriðjudaginn 6. júní næstkomandi klukkan 20:30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m. a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
13:33 02. jún. 2023   Sjómannadagurinn á Skagaströnd
Sjómannadagshelgin er framundan og verða hátíðarhöld víða um land í tilefni sjómannadagsins 4. júní. Á Skagaströnd hófst hátíðin í gær og má finna fjölbreytta og glæsilega dagskrá helgarinnar á vefnum Hetjur hafsins. Í dag verður m.a. fiskasýning í Fiskmarkaðinum, myndlystarsýning á Horbour restaurant & bar og barnavagnasýning í Bjarmanesi. Sjómannadagshlaupið hefst klukkan 17 við félagsheimilið Fellsborg og þar verður froðurennibraut. Þá verður hægt að fara í útsýnissiglingu um Húnaflóa í kvöld.
  1 2 3 4 5 6 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið