15:53 |
10. maí 2023 |
Fjórar milljónir í uppbyggingu íþróttamannvirkja
Samkvæmt fjárfestingaráætlun Húnabyggðar 2023 á að leggja fjórar milljónir króna í uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu á þessu ári. Áætlunin var kynnt á fundi íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefndar Húnabyggðar á mánudaginn. Þar kom fram að tvær og hálf milljón fara í vatnslögn upp á skotsvæði Markviss og að ein og hálf milljón væri óráðstöfuð. Að loknum umræðum um skýrslur íþróttafélaganna og hvar ætti að ráðstafa þessum fjármunum á árinu lagði nefndin til við sveitarstjórn að veita Golfklúbbnum Ós eina og hálfa milljón til uppbyggingar á íþróttasvæði sínu. |
15:33 |
10. maí 2023 |
Skoða eigi aðrar leiðir til að minnka umfang urðunar í Stekkjarvík
Sveitarstjórn Húnabyggðar er óánægð með að áform um stækkun urðunarsvæðis í Stekkjarvík komi ekki formlega inn á hennar borð áður en stjórn Norðurár samþykkir framkvæmdina endanlega. Þá setur sveitarstjórnin spurningarmerki við að ekki þurfi sérstakt framkvæmdaleyfi frá henni enda áformaðar framkvæmdir umfangsmiklar. |
15:24 |
10. maí 2023 |
Skorar á borgarstjórn að fresta byggingaráformum í Skerjafirði
Sveitarstjórn Húnabyggðar er áhyggjufull yfir fyrirhugaðri uppbyggingu í Skerjafirði í Reykjavík. Í bókun sveitarstjórnarfundar í gær segir að með ákvörðuninni sé samkomulagi ríkis og Reykjavíkurborgar frá 2019 teflt í tvísýnu þar sem forsenda þess var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur yrði tilbúinn til notkunar. |
14:34 |
10. maí 2023 |
Félags- og skólaþjónusta A-Hún. fékk styrk úr Sprotasjóði Rannís
Félags- og skólaþjónusta A-Hún. hefur fengið fjögurra milljón króna styrk úr Sprotasjóði Rannís til að gera sameiginlega forvarnaráætlun fyrir Norðurland vestra til fjögurra ára, sem stuðla á að farsæld allra barna á svæðinu. Áætlunin á að gilda fyrir öll börn á leik-, grunn- og framhaldsskólaaldri og verða öllum aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna á Norðurland vestra. Sagt er frá þessu á Skagastrandarvefnum. |
09:05 |
10. maí 2023 |
Rekaviðanytjar söguefni sýningar á Reykjum
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum í Hrútafirði opnar á næstunni sýningu þar sem söguefnið er rekaviðanytjar. Þetta eru nytjar sem skipta miklu máli, segir Benjamín Kristinsson, safnstjóri á Reykjum, í viðtali við Morgunblaðið sem fjallaði um málið á mánudaginn. Um aldir hafa kynstrin öll af góðvið borist norðan frá Síberíu í Rússland að Íslandsströndum. Hafstraumar liggja þannig að einkum og helst hefur við þennan rekið á fjörur í norðanverðri Strandasýslu og verið þar gott búsílag. |
16:57 |
09. maí 2023 |
Guðrún Ósk ráðin aðstoðarskólastjóri
Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra. Hún er með B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands og hefur starfað við kennslu í Grunnskóla Húnaþings vestra frá árinu 2011. Árin 2019-2020 starfaði hún sem ráðgjafi á fjölskyldusviði þar sem hún stýrði m.a. málum nemenda sem glímdu við skólaforðun. |
16:53 |
09. maí 2023 |
Frakkar festu bíl sinn á Kjalvegi
Það eru fleiri vorboðar á ferðinni en götusópurinn því nú eru ferðamenn farnir að festa bíla sína á Kjalvegi. Björgunarfélagið Blanda fór í sitt fyrsta útkall vorsins í gær þegar franskir ferðalangar festu bíl sinn á Kjalvegi ekki langt frá Gíslaskála. Á facebooksíðu björgunarfélagsins segir að veðrið hafi verið fínt og að engin hætta hafi verið á ferðum. |
16:42 |
09. maí 2023 |
Nýtt tímabundið starf verkefnastjóra ferðamála
Á vef Húnabyggðar er auglýst eftir verkefnastjóra ferðamála í sveitarfélaginu en um tímabundið starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og vinni í sumar og út ágúst að minnsta kosti. Meðal verkefna sem liggja fyrir eru t.d. utanumhald um ferðamannastaði sveitarfélagins, skálar í leigu, opin svæði og fleira, uppbygging ferðamannastaða, en nokkur svæði eru í þróun eins og Þrístapar, Vatnsdæla og gamli bærinn, styrkjaumsóknir, samskipti við verktaka og fleira. |
15:06 |
08. maí 2023 |
Skólahreystilið Grunnskóla Húnaþings vestra náði góðum árangri
Í 18 ár hafa skólahreystimótin verið líkt og vorboðinn ljúfi en eins og flestir ættu að vita eru þau liðakeppni milli grunnskóla landsins. Skólahreystilið Grunnskóla Húnaþings vestra tók þátt í riðlakeppni Skólahreysti á dögunum og náði þar frábærum árangri. Þau lentu í öðru sæti eftir að hafa sigrað í tveimur keppnisgreinum. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. |
14:52 |
08. maí 2023 |
Auglýst eftir efni í frístundabækling Húnabyggðar 2023
Húnabyggð stefnir að því að gefa út bækling/vefrit með upplýsingum um íþrótta- og tómstundastarf sem verður í boði í sveitarfélaginu í sumar fyrir unga sem aldna. Upplýsingar um leikjanámskeið, reiðskóla, íþróttir, leiklist og fleira sem er í boðið í sumar er dæmi um það sem gæti verið í bæklingnum. Húnabyggð leitar því til aðila sem halda úti slíkri starfsemi og þurfa upplýsingar að berast til menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa fyrir 15. maí næstkomandi. |
10:27 |
07. maí 2023 |
Kristrún Frosta með opinn fund á Kiljunni
Heilbrigðismálin í forgrunni og öllum velkomið að taka þátt
Samfylkingin hefur upp á síðkastið boðað til fjölda opinna funda um heilbrigðismál um land allt. Fundirnir eru opnir öllum og liður í nýju og umfangsmiklu málefnastarfi sem Kristrún Frostadóttir formaður flokksins hefur ýtt úr vör. Þrír slíkir fundir um heilbrigðismál verða á Norðurlandi vestra dagana 8. og 9. maí og fara þeir fram á eftirfarandi stöðum: |
09:57 |
07. maí 2023 |
Stærsta áskorunin að mæta aukinni eftirspurn
Vinnslusaga hitaveitu RARIK í Austur-Húnavatnssýslu hefur verið vörðuð áskorunum og stærsta áskorunin núna er að mæta eftirspurn með lækkandi vatnsborði í jarðhitakerfum. Fyrir liggur hófleg eftirspurn eftir vatni í takt við íbúaþróun auk eftirspurnar frá iðnaði en fyrirséð er að veitan eigi í erfiðleikum með að viðhalda núverandi vinnslu. Því er nú verið að bora eftir meira vatni og rannsaka ný vinnslusvæði ásamt aðgerðum til að lágmarka sóun. Þetta kemur fram í svörum hitaveitunnar sem birt eru í skýrslunni Hitaveitur á Íslandi - Úttekt á stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhitavatns til húshitunar. |
08:52 |
07. maí 2023 |
Sigur í fyrsta leik
Kormákur Hvöt gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn í gær þegar liðið heimsótti Íþróttafélag Hafnarfjarðar. Um var að ræða fyrsta leik liðanna á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla 3. deild. Kormákur Hvöt byrjaði leikinn með krafti og skoraði strax á sjöundu mínútu en þar var að verki Ismael Moussa Yann Trevor. ÍH jafnaði leikinn fljótlega er og var jafnræði með liðunum eftir það. Staðan í hálfleik 1-1. |
08:32 |
07. maí 2023 |
Götur sópaðar á Skagaströnd
Vorboðinn ljúfi, götusópurinn, verður á Skagaströnd mánudaginn 8. maí og er stefnt að því að búið verði að sópa allar götur í lok dags þriðjudaginn 9. maí. Til að verkið gangi vel fyrir sig þarf gott samstarf við íbúa. Gott er að leggja bílum sínum ekki á götum og gangstéttum meðan á sópun stendur. |
14:45 |
05. maí 2023 |
Hagnaður af rekstri Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd var rekið með 629 þúsund króna hagnaði í fyrra. Afkoman er mun betri en áætlun gerði ráð fyrir með viðaukum en hún hljóðaði upp á 73 milljón króna tap. Síðari umræða um ársreikning sveitarfélagsins 2022 fór fram á sveitarstjórnarfundi í gær og var hann samþykktur samhljóða. Samkvæmt honum voru rekstrartekjur í fyrra 792,1 milljón króna og rekstrargjöld ásamt afskriftum og fjármagnsgjöldum voru 791,5 milljónir króna. |