20:47 |
01. mars 2021 |
Tilkynningar |
Píanóstillingar
Frá Eyþóri organista
Helgina 12.-14. mars verður flygill Blönduósskirkju stilltur. Þeir sem vilja nýta sér krafta Björgvins Ívars, sem gerir sér ferð hingað norður, vinsamlega skrái sig hjá mér í tölvupósti á eythorfw@gmail.com. Þetta er tilvalið fyrir þá sem misstu af honum í haust eða ef píanóið hefur misst stillingu síðan þá! |
rzg
|
20:40 |
01. mars 2021 |
Tilkynningar |
Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi
Frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Við auglýsum eftir tveimur konum til starfa við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi fyrir sumarið 2021. Um er að ræða 100% stöðugildi, vaktavinnu og unnið um helgar skv. vaktaskipulagi. Ráðningartíminn (sumartíminn) er frá 1. júní til 20. ágúst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. |
rzg
|
13:19 |
26. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Kjör í stjórnir og nefndir Samstöðu
Frá Stéttarfélaginu Samstöðu
Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar síðastliðinn, tillögu uppstillingarnefndar að framboði til stjórnarkjörs í félaginu í þau embætti sem kjósa á um í ár samkvæmt lögum félagsins.
|
rzg
|
09:22 |
26. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Frjálsar íþróttir fyrir 3.-4. bekk
Fimmtudaginn 4. mars hefjast frjálsíþróttaæfingar fyrir börn í 3.-4. bekk. Æfingarnar verða á fimmtudögum frá klukkan 16-17. Verð fram á vor er 3.500 krónur. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á steinamagg@gmail.com. Dagana 4. mars og 11. mars verður hægt að prufa frítt. Eftir það þarf að vera búið að skrá iðkanda til að get mætt á æfingar. Þjálfari er Steinunn Hulda. |
rzg
|
13:46 |
25. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Skagaströnd auglýsir eftir atorkumiklum starfsmanni á höfn og í áhaldahús
Skagaströnd auglýsir eftir atorkumiklum starfsmanni á höfn og í áhaldahús sveitarfélagsins. Skagaströnd er fallegt sjávarþorp á norðurlandi vestra. Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd eru um 480 og starfsmenn þess um 48 talsins. Í boði er 80 - 100% starf starfsmanns sem sinnir daglegum verkefnum á Skagastrandarhöfn og í áhaldahúsi sveitarfélagsins. |
rzg
|
19:56 |
24. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Aðalfundur golfklúbbsins Óss
Frá stjórn
Aðalfundur golfklúbbsins Óss verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 18:00 í Norðursal Íþróttahússins.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn GÓS hvetur alla áhugasama að mæta. Aðalfundarstörfin taka stuttan tíma og undir liðnum önnur mál er létt spjall.
|
rzg
|
12:13 |
24. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Auglýst eftir frambjóðendum
Frá kjörstjórn
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum til alþingiskosninga sem fram fara í haust. Kosið verður um fjögur efstu sætin á framboðslistanum á auknu kjördæmisþingi skv. lið 3.3. b. lið í reglum flokksins um val á framboðslista. Stuðst verður við reglur um paralista skv. skilgreiningu úr reglum flokksins. |
rzg
|
10:32 |
23. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Starfsmaður óskast á Heimilið við Skúlabraut
Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi óskar eftir starfsmanni til starfa í mars-maí 2021 með möguleika á framhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu. |
rzg
|
14:38 |
20. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Sunnudagaskóli og guðsþjónusta í Blönduóskirkju sunnudaginn 21. febrúar kl. 11.
Loksins getum við hist í kirkjunni okkar. Syngjum saman, þökkum og biðjum. Eyþór og kirkjukórinn leiða sönginn. Allir hjartanlega velkomnir, ungir og aldnir. |
rzg
|
15:41 |
19. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Aðalfundur Húnavatnssýsludeildar Rauða krossins
Frá stjórn
Aðalfundur Húnavatnssýsludeildar Rauða krossins verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 17.00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga ef reglur um sóttvarnir leyfa.
Að öðrum kosti verður fundurinn haldinn í fjarfundi sama dag og á sama tíma, vinsamlega fylgist með á heimasíðu Rauða krossins undir viðburðir. |
rzg
|
10:16 |
19. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Kormákur Hvöt ætlar sér upp um deild
Frá Kormáki/Hvöt
Undanfarin 10 ár hafa Kormákur frá Hvammstanga og Hvöt frá Blönduósi sent sameiginleg lið til leiks í mótum KSÍ í meistaraflokki karla. Í tilefni af þessum áfanga blés nýtt meistaraflokksráð í herlúðra og horft er til sumarsins mjög björtum og metnaðarfullum augum.
Undanfarin tvö ár hefur liðið verið hársbreidd frá því að komast upp í 3. deild, en í bæði þessi skipti hefur Kormákur Hvöt unnið sinn riðil og farið í fjögurra liða úrslit 4. deildarinnar. |
rzg
|
09:02 |
18. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Tilkynning um forval VG í Norðvesturkjördæmi
Frá stjórn kjördæmisráðs
Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Forvalið fer fram með rafrænum hætti dagana 23., 24. og 25. apríl. Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til klukkan 17 þann 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. |
rzg
|
22:01 |
17. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Aðalfundur kirkjugarðs Blönduóss
Frá stjórn
Aðalfundur kirkjugarðs Blönduóss, verður haldinn í Samstöðusalnum að Þverbraut 1, Blönduósi miðvikudaginn 24. febrúar 2021 klukkan 18:00. Hvetjum sóknarbörn Blönduósskirkju til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta framtíðarsýn fyrir kirkjugarðinn á Blönduósi. |
rzg
|
14:42 |
15. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Frá RARIK vegna öskudagsins
Vegna sóttvarnaraðgerða COVID-19 getum við því miður ekki tekið á móti krökkum á öskudaginn.
Sjáumst á næsta ári.
Starfsfólk RARIK |
rzg
|
14:52 |
11. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Skólablað Blönduskóla er komið út
Skólablað Blönduskóla, VIT, hefur verið dreift á öll heimili á Blönduósi. Ef blaðið hefur ekki borist inn á einhver heimili þá er hægt að hafa samband við skólann í síma 455-4750 eða senda póst á blonduskoli@blonduskoli.is. |
ass
|