Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:36 0 0°C
Laxárdalsh. 04:36 0 0°C
Vatnsskarð 04:36 0 0°C
Þverárfjall 04:36 0 0°C
Kjalarnes 04:36 0 0°C
Hafnarfjall 04:36 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 74 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
09:12 02. jún. 2023   Húni 44. árgangur kominn út
Húni, ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, er kominn út, að þessu sinni 44. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst er þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal við Jóhannes Kristófersson frá Finnmörk, grein um Guðmund Gíslason, brúarsmið, og frásagnir eftir Þórhildi Ólafsdóttur, Ólaf Dýrmundsson og Auði Þórhallsdóttur.
15:25 01. jún. 2023   Guðrún og Sigríður Eddý kveðja Húnaskóla
Á vef Húnaskóla er sagt frá því að Guðrún Sigurjónsdóttir og Sigríður Eddý Jóhannesdóttir hafi látið af störfum vegna aldurs nú við skólalok. Báðar hafa þær unnið við skóla í héraðinu til fjölda ára. Gunna fyrst 1982-1986 og svo frá 1999 til dagsins í dag sem skólaliði, stuðningsfulltrúi og verkgreinakennari á Húnavöllum en síðasta starfsárið starfaði hún sem stuðningsfulltrúi í Húnaskóla. Sigríður hóf störf sem kennari við Grunnskólann á Blönduósi árið 1997 sem síðar breyttist svo í Blönduskóla og núna síðasta starfsárið kenndi hún í nýja skólanum, Húnaskóla.
15:14 01. jún. 2023   Guðsþjónusta á sjómannadaginn
Frá Hólaneskirkju
Til hamingju með sjómannadaginn. Skrúðganga frá hafnarsvæði til guðsþjónustu klukkan 12:30 sem hefst klukkan 13:00. Pétur Ingjaldur Pétursson er ræðumaður dagsins. Séra Bryndís Valbjarnadóttir þjónar fyrir altari. Kór Hólaneskirkju sér um söng. Organisti er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Að lokinni athöfn verður lagður blómsveigur við minisvarða um þá frá Skagaströnd sem hafið geymir.
21:02 31. maí 2023   BioPol fær styrk úr Matvælasjóði
Matvælaráðherra hefur úthlutað um 577 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hlutu 53 verkefni styrk en 177 umsóknir bárust til sjóðsins. Sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd er á meðal þeirra sem hlaut styrk, tæplega 19 milljónir króna fyrir verkefni sem nefnist Hrognkelsafengur - hnossgæti úr sjó. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.
14:26 30. maí 2023   Spennandi nýsköpun á Blönduósi
Íslenska hátækni- og nýsköpunarfyrirtækið Foodsmart Nordic er að hefja starfsemi á sviði fæðubótaefna á Blönduósi. Sérhannað húsnæði á Ægisbraut 2 er tilbúið og samtals nemur fjárfestingin á bilinu 500-600 milljónum króna í fasteign og tækjabúnaði. Um er að ræða fyrsta áfanga húsnæðisins á Blönduósi en stefnt er að frekari stækkun þegar fram í sækir. Tilraunaframleiðsla er þegar hafin og fyrirhugað er að formleg starfsemi hefjist á allra næstu mánuðum.
13:41 30. maí 2023   Kökubasar Foreldrafélags leikskóla Húnabyggðar
Foreldrafélag leikskóla Húnabyggðar heldur árlegan kökubasar sinn í anddyri Kjörbúðarinnar fimmtudaginn 1. júní frá klukkan 14-17. Hvetjum ykkur til að mæta og styðja við starfsemi félagsins.
10:32 29. maí 2023   Kórtónleikar í Hólaneskirkju á fimmtudaginn
Kórtónleikar fara fram í Hólaneskirkju fimmtudagskvöldið 1. júní klukkan 20. Kirkjukór Hólaneskirkju flytur fjölbreytta dagskrá og verða nokkur sjómannalög á efnisskránni í tilefni sjómannadagsins. Kórnum til aðstoðar verða Jón Ólafur Sigurjónsson á bassa og Valtýr Sigurðsson á trommur.
12:49 28. maí 2023   Suðvestan hvassviðri í kortunum
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun sem tekur gildi á morgun 29. maí klukkan 15 og gildir til klukkan 10 þriðjudaginn 30. maí. Spáð er suðvestan hvassviðri 15-20 m/s og má búast við vindhviðum yfir 25 m/s við fjöll. Fólk er hvatt til þess að huga að lausamunum. Veðrið getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og eru ferðalangar því beðnir um að hafa varann á sér.
12:38 28. maí 2023   Sigur í Eyjum
Kormákur Hvöt gerði góða ferð til Vestmannaeyja í gær þegar liðið heimsótti Knattspyrnuliðið Framherja-Smástund eða KFS. Leikurinn átti að fara fram klukkan 14 en var frestað til klukkan 18 vegna veðurs. Eyjamenn voru fyrri til að skora í leiknum og staðan í hálfleik var 1-0 fyrir heimamenn. Liðsmenn Kormáks Hvatar mættu ákveðnari til seinni hálfleiks og skoraði Ismael Moussa Yann Trevor tvö mörk sem dugðu til sigurs, lokatölur 1-2.
10:07 27. maí 2023   Fjölbreytt úrval afþreyingar- og útivistarmöguleika í Húnabyggð í sumar
Gefinn hefur verið út frístundabæklingur með helstu upplýsingum um íþrótta- og tómstundastarf í Húnabyggð sumarið 2023. Boðið er upp á fjölbreytt úrval af afþreyingu- og útivistarmöguleikum fyrir unga sem aldna og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Í bæklingnum má meðal annars finna upplýsingar frá Skotfélaginu Markviss, bókasafninu, frjálsíþróttadeild Hvatar, knattspyrnudeild Hvatar, TextílLabinu, Vinnuskólanum og Golfklúbbnum Ós.
09:47 27. maí 2023   Biður ferðamenn að stoppa á Blönduósi
Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð, biðlar til íslenskra og erlendra ferðamanna, um að stoppa á Blönduósi þegar þeir keyra í gegnum bæjarfélagið og ekki einungis til að fara á salerni eða að fá sér pylsu. Um sjö hundruð þúsund bílar fara í gegnum Blönduós árlega og fæstir stoppa á staðnum, að því er segir í frétt á Vísi. Magnús Hlynur Hreiðarsson, hinn skeleggi fréttamaður Stöðvar 2, heimsótti sveitarstjórann nýverið og má sjá afraksturinn hér.
09:23 27. maí 2023   Opið hús í Nesi listamiðstöð á mánudaginn
Fjölbreyttur hópur listamanna maímánaðar í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd heldur opið hús mánudaginn 29. maí klukkan 16-18. Listamennirnir vinna við ritlist, hönnun, málun, dans og margt fleira. Upplagt er að enda hvítasunnuhelgina á því að heimsækja vinnustofuna í Nesi listamiðstöð á Fjörubraut 8, heilsa upp á listamennina og sjá verk þeirra.
11:09 26. maí 2023   Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hættir móttöku á Blönduósi
Tilkynning til íbúa Húnavatnssýsla um skerðingu á þjónustu við heyrnarskerta íbúa
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands þykir leitt að tilkynna að stofnunin er knúin til að leggja niður þá móttöku heyrnarsviðs sem staðið hefur til boða á Blönduósi mánaðarlega síðustu ár. Síðasti afgreiðsludagur að sinni hjá Sofiu Dalman, heyrnarfræðingi HTÍ, er mánudaginn 12. júní nk. Heyrnarskertum íbúum svæðisins, sem þurfa að sækja þjónustu til HTÍ er bent á afgreiðslustaði HTÍ á Sauðárkróki, Akureyri eða Reykjavík.
10:54 26. maí 2023   Gul viðvörun - ekki vegna sólskins
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir mest allt landið á morgun en von er á norðvestan hríð. Fyrir Norðurland vestra tekur gul viðvörun gildi um miðnætti í kvöld og rennur út á hádegi á morgun. Spáð er norðvestan 13-18 m/s og snjókommu á fjallvegum með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Líklega verður úrkoman rigning eða slydda á láglendi. Það er huggun harmi gegn að líklega sér fyrir endann á gulum veðurviðvörunum, í bili að minnsta kosti.
10:42 26. maí 2023   Lífleg opnun í Fremri-Laxá
Sporðaköst, veiðivefur mbl.is, segir frá opnun í Fremri-Laxá, sem er ein besta urriðaá landsins. Áin fellur úr Svínavatni í Laxárvatn og er fiskurinn í henni fremur smár en sprettharður. Opnunarhollið voru sex veiðikonur sem kalla sig Veiðipöddurnar og í för með þeim var leiðsögumaðurinn Hallgrímur Gunnarsson. Fram kemur í Sporðaköstum að fiskur hafi verið hoppandi um alla á og að veðrið hafi sett sitt mark á opnunina. Þetta er í þriðja sitt sem Veiðipöddurnar opna ána og var opnunin í ár sú langbesta. Hópurinn landaði 93 urriðum og var þeim flestum sleppt.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið