10:20 |
08. sep. 2021 |
Harmonikkutónleikar í Hvammstangakirkju
Storm Duo heldur harmonikkutónleikar í Hvammstangakirkju föstudaginn 10. september klukkan 10. Storm Duo skipa harmonikkuleikararnir Ásta Soffía Þorgeirsdóttir frá Húsavík og Kristina Farstad Björdal frá suður Mæri í Noregi. Á tónleikunum verður fjölbreytt efnisskrá til að sýna margbreytileika harmonikkunnar. Norsk þjóðlagatónlist, klassísk tónlist, harmonikkuslagarar og fleira.
|
10:10 |
08. sep. 2021 |
Fjöldatakmarkanir vegna gangna og rétta
Gefnar hafa verið út sóttvarnaleiðbeiningar vegna gangna og rétta. Stór réttarhelgi er framundan í Húnavatnssýslum um helgina. Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út almenna undanþágu varðandi fjöldatakmörk í réttum á öllu landinu á grundvelli þess að um kerfislega og efnahagslega mikilvæga starfsemi sé að ræða og verða fjöldatakmarkanir því miðaðar við 300 manns en ekki 200 eins og almennt tíðkast. |
08:06 |
08. sep. 2021 |
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september 2021
Þann 13. ágúst sl. hófst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga til Alþingis sem fram fara laugardaginn 25. september nk. |
21:14 |
07. sep. 2021 |
Kormákur/Hvöt upp um deild eftir sigur á Hamri
Kormákur/Hvöt er komið upp í 3. deild eftir sigur á Hamri í úrslitakeppninni 4. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli 1-1 í Hveragerði og leikurinn í kvöld, sem fram fór á Blönduósvelli, endaði með 1-0 sigri heimamanna. Akil Rondel Dexter De Freitas skoraði markið í seinni hálfleik. |
15:58 |
07. sep. 2021 |
Allir á völlinn í dag
Mikilvægur leikur á Blönduósvelli
Kormákur/Hvöt tekur á móti Hamri frá Hveragerði á Blönduósvelli í dag klukkan 17. Um er að ræða seinni leikinn í 4-liða úrslitum í úrslitakeppni 4. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Úrslit leiksins ráða því hvort Kormákur/Hvöt spilar í 3. deild að ári eða verður áfram í sömu deild, 4. deild. Allir Húnvetningar og aðrir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta á völlinn og styðja við liðið. |
10:01 |
07. sep. 2021 |
Átta gjaldfrjáls námskeið í boði
Stéttarfélögin Aldan, Kjölur, Samstaða, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum á námskeið, þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru haldin á vegum Farskólans á Norðurlandi vestra en þau eru öllum opin og geta aðrir en félagsmenn þessara félaga kannað rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi. Námskeiðin eru: |
08:46 |
07. sep. 2021 |
Birkifræ - landsöfnun
Í haust heldur átakið Söfnum og sáum birkifræi áfram í samstarfi Landgræðslunnar og Skógræktarinnar ásamt nokkrum fyrirtækjum og samtökum. Söfnunin gekk vel í fyrra. Biðlað er til þjóðarinnar að safna birkifræi og annað hvort skila því inn til söfnunarinnar eða sá því á eigin spýtur, þar sem vilji er til að koma birkiskóggræðslu af stað. |
19:33 |
06. sep. 2021 |
Nýr og glæsilegur Mercedes Benz Sprinter sjúkrabíll hjá HSN á Blönduósi
Sjúkraflutningsfólk Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi hefur tekið í notkun glænýjan Mercedes Benz Sprinter sjúkrabíl. Bíllinn er búinn besta og nýjasta búnaði sem þörf er á og er hann einn af 25 sjúkrabílum sem komið hefur til landsins á síðustu vikum. |
14:22 |
06. sep. 2021 |
Félags- og tómstundastarf að Þverbraut 1
Tilkynning
Kæri íbúi/íbúar. Við bjóðum þér (ykkur) í félags og tómstundastarf að Þverbraut 1. Starfsemin hefst 9. september og verður á mánudögum og fimmtudögum frá kl.: 13:30 - 16:30. Athugið breyttur opnunartími, einnig verður handavinna og spil á sama tíma (til prufu). Engin skylda er að spila eða gera handavinnu gott er líka að koma og spjalla hitta aðra og rjúfa félagslega einangrun. Akstur er í boði fyrir iðkendur á 540 svæðinu. |
10:46 |
05. sep. 2021 |
Sigurður H. með nýja skáldsögu
Þann 1. september síðastliðinn kom út hjá Bókaútgáfunni Merkjalæk skáldsagan Lognþoka eftir Sigurð H. Pétursson. Bókin er kilja og 207 blaðsíður. Sögusviðið er það sama og í fyrri bókum höfundar, Út í nóttina og Innbrotið, afskekkt hérað á Norðurlandi, Sandvík og sveitirnar í kring. Sagan hefst í Fellaskóla. |
09:47 |
04. sep. 2021 |
Auglýst eftir tilnefningum vegna samfélagsviðurkenninga í Húnaþingi vestra
Félagsmálaráð Húnaþings vestra leitar til íbúa sveitarfélagsins um ábendingar vegna samfélagsviðurkenninga fyrir árið 2019-2021. Auglýst eftir tilnefningum um aðila sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín eða störf í þágu samfélagsins. Allir koma til greina, einstaklingar jafnt sem fyrirtæki og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd. |
09:34 |
04. sep. 2021 |
Jafntefli í Hveragerði
Kormákur/Hvöt gerði 1-1 jafntefli við Hamar í Hveragerði í gærkvöldi í fyrri leik liðanna í 4-liða úrslitum 4. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Seinni leikurinn fer fram á Blönduósvelli á þriðjudaginn. Mark Kormáks/Hvatar kom í fyrri hálfleik en það gerði Hilmar Þór Kárason. Mark heimamanna kom í uppbótartíma leiksins. |
09:35 |
03. sep. 2021 |
Vill ljúka lagningu bundins slitlags á Blönduósflugvöll
Tryggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu skiptir miklu fyrir búsetuöryggi. Þar gegnir sjúkraflug um Blönduósflugvöll lykilhlutverki fyrir íbúa í Húnavatnssýslum og þann fjölda fólks sem ferðast þar um, segir Bjarni Jónsson oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi á facebooksíðu sinni en hann heimsótti Blönduósbæ nýverið. |
09:08 |
03. sep. 2021 |
Frisbígolfvöllurinn á Blönduósi formlega vígður
Glæsilegur níu körfu frisbígolfvöllur var formlega vígður í Fagrahvammi á Blönduósi í gær. Fulltrúar frá Frisbígolfþjónustu Akureyrar komu og kynntu íþróttina, helstu grunnatriði, köst og leikreglur.
Frisbígolf eða folf er íþrótt sem fer fram á svipaðan hátt og venjulegt golf, en í stað golfkylfa og golfbolta nota leikmenn svifdiska. |
14:51 |
02. sep. 2021 |
Miðfjarðará orðin þriðja aflamesta áin
Miðfjarðará heldur áfram að skila rúmlega 90 löxum á viku og er áin nú orðin sú þriðja aflamesta á lista Landssambands veiðifélaga yfir aflamestu ár landsins. Alls hafa veiðst 1.309 laxar sem af er sumri en 2. september í fyrra höfðu veiðst 98 fleiri laxar eða 1.407. Víðidalsá er komin í 534 veidda laxa sem er 137 löxum meira en á sama tíma í fyrra. Laxá á Ásum stendur í 506 löxum, tæplega 100 löxum færra en á sama tíma í fyrra. Laxveiði í Blöndu hefur náð 418 löxum sem er fækkun um 57 laxa milli ára. |