Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 28. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:21 0 0°C
Laxárdalsh. 05:21 0 0°C
Vatnsskarð 05:21 0 0°C
Þverárfjall 05:21 0 0°C
Kjalarnes 05:21 0 0°C
Hafnarfjall 05:21 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 46-60 61-71 af 71  
KlukkanDagsetningFrétt
09:45 27. ág. 2021   Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum
Heilbrigðisráðherra hefur kynnt breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem taka gildi frá og með morgundeginum. Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 200 manns og reglur um 1 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Aftur á móti verður sund- og baðstöðum, heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi, eins metra regla felld niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum, auk fleiri tilslakana sem nánar eru raktar hér að neðan.
09:35 27. ág. 2021   Opið hús í Textílmiðstöðinni 27.-29. ágúst
Frá Textílmiðstöð Íslands
Helgin verður viðburðarík í Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Við bjóðum ykkur velkomin í opið hús í TextílLabinu að Þverbraut 1 föstudag (27.8), laugardag (28.8) og sunnudag (29.8). Á staðnum eru geislaskeri, vínyl prentari, útsaumsvél, nálaþæfingarvél og stafrænn vefstóll. Smiðjustjóri mun aðstoða við notkun á smiðjunni. Aðgengi er frítt, en greitt fyrir það efni sem notað er.
09:33 27. ág. 2021   Miðfjarðará fjórða aflamesta laxveiðiá landsins
Nú er liðið á seinni hluta laxveiðisumarsins og veiðitölur eftir því. Eins og margoft hefur komið fram í laxveiðifréttum Húnahornsins hefur veiðin verið dræm í sumar og það hefur lítið breyst síðustu vikuna. Miðfjarðará stendur sig best af helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum. Alls veiddust þar 94 laxar síðustu vikuna og er áin komin í 1.217 laxa. Í Víðidalsá veiddust rúmlega 30 laxar síðustu vikuna og stendur áin í 492 veiddum löxum.
12:20 26. ág. 2021   Loftslagsbúskapur á Fjarðarhorni í Hrútafirði
Fyrsta vottaða kolefnisbindingarverkefninu sem íslenskt fyrirtæki ræðst í hefur verið valinn staður á Fjarðarhorni í Hrútafirði. Þar verða næstu 50 árin bundin um 90.000 tonn af koltvísýringi í nýjum skógi sem ræktaður verður á 250 hekturum lands. Ræktun og umhirða skógarins skapar atvinnutækifæri í byggðarlaginu auk þess sem tún verða áfram nýtt til landbúnaðar og hús á jörðinni fyrir vaxandi hóp starfsfólks í Staðarskála.
12:16 26. ág. 2021   Skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga samhliða alþingiskosningum
Samhliða alþingiskosningunum 25. september næstkomandi geta íbúar Húnavatnshrepps, sem náð hafa 18. ára aldri þann dag og hafa kjörgengi í sveitarstjórnarkosningum, tekið þátt í skoðanakönnun um hvort fara eigi í sameiningarviðræður við Blönduósbæ. Fyrr í sumar óskaði Blönduósbær eftir formlegum sameiningarviðræðum og tók sveitarstjórn Húnavatnshrepps jákvætt í þá ósk með þeim fyrirfara um að gerði yrði skoðanakönnun fyrir íbúa til að umboð sveitarstjórnar væri ljós.
11:45 26. ág. 2021   Menningarminjadagar Evrópu í Byggðasafninu
Byggðasafnið á Reykjum í Hrútafirði tekur þátt í evrópskum menningarminjadögum í næstu viku. Áhersla þeirra er að kynna hverfandi menningararf og stuðla þannig að vitund og virðingu fyrir hefðum og kunnáttu sem brátt heyra sögunni til.
21:25 24. ág. 2021   Með grjót í vösunum - bókarkynning
Ævisaga Sveins Torfa Þórólfssonar (1945-2016) verkfræðings frá Skagaströnd kemur út laugardaginn 28. ágúst næstkomandi. Bókin verður kynnt og frumsýnd almenningi í Gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd klukkan 15 þann dag. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm og reglur um sóttvarnir leyfa. Kaffi og kleinur verða í boði útgefenda.
20:48 24. ág. 2021   Alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga
Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest fer fram í annað sinn dagana 8.-10. október næstkomandi. Á hátíðina koma á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir.
14:28 23. ág. 2021   Auglýst eftir styrkumsóknum
Félagasamtök og einstaklingar í Húnaþingi vestra sem hafa hug á að sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári geta nú fyllt út þar til gert eyðublað og sent ásamt fylgigöngum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is. Frestur er til 10. september næstkomandi.
14:24 23. ág. 2021   Fyrirlestraröð Selasetursins hefst í kvöld
Í vetur ætlar Selasetur Íslands að halda áfram með opna fyrirlestraröð þar sem fræðimenn úr ýmsum áttum koma og halda fyrirlestra. Vísindamenn setursins í sumar, þær Bronte Harris frá Englandi og Laura Redaelli frá Ítlaíu, ríða á vaðið með fyrirlestra í kvöld í Selasetrinu á Hvammstanga klukkan 20. Fyrirlestrarnir verða á ensku og verður boðið upp á kaffi og konfekt.
09:10 23. ág. 2021   Samherjar lagðir í síðasta leik riðlakeppninnar
Kormákur/Hvöt mætti Samherjum í Hrafnagili í Eyjafirði á laugardaginn þegar síðasta umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli var leikin. Fyrir leikinn var liðið búið að tryggja sig inn í úrslitakeppni 4. deildar og Samherjar áttu enga möguleika á að ná í slíkt sæti. Leikurinn einkenndist af því og var fátt um fína drætti og aðeins eitt mark skorað í leiknum.
Fyrri 46-60 1 2 3 4 5  
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið