15:41 |
21. mars 2024 |
Sveinbjörg Rut nýr formaður USVH
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur. |
15:23 |
21. mars 2024 |
Solihull grunnnámskeið á Blönduósi
Frá Geðverndarfélagi Íslands
Við munum halda Solihull grunnnámskeið á Blönduósi 20. apríl og 4. maí. Solihull aðferðin snýst um tilfinningalegt heilbrigði ungra barna og er mjög gagnlegt og upplýsandi fyrir alla sem vinna með ungum börnum, mæðrum á meðgöngu og kennurum.
Námskeiðið tekur 2 daga, kl. 11-17:30. Fagfólk þarf að mæta í tvo 1,5 klst. handleiðslutíma að námskeiðinu loknu áður en skírteini eru afhent. |
14:50 |
21. mars 2024 |
Fengu að sjá hvernig rafmagn er framleitt
Fyrr í þessum mánuði fóru nemendur í 9. og 10. bekk Húnaskóla, ásamt náttúrufræðikennurum sínum í vettvangsferð í Blöndustöð. Markmið ferðarinnar var að tengja námsefni um rafmagn og segulmagn, sem nemendur hafa verið að vinna í, við nánasta umhverfi og gefa þeim kost á að sjá með eigin augum hvernig rafmagn er framleitt. Í Blöndustöð fékk hópurinn vel skipulagða og greinagóða leiðsögn fjögurra starfsmanna stöðvarinnar. |
14:37 |
21. mars 2024 |
Opið hús í Nesi listamiðstöð á sunnudaginn
Listamiðstöðin Nes á Skagaströnd heldur opið hús á sunndaginn milli klukkan 15:30 og 17:30. Þar taka listamenn á móti gestum og sýna verk sín. Sökktu þér niður í heim skapandi tjáningar ásamt fjölbreyttum hópi listamanna og höfunda víðsvegar að úr heiminum sem vinna við teiknimyndir, klippimyndir, útsaum, keramik og bókmenntir. Komdu og vertu hluti af þessu samfélagi og eigðu samskipti við þessa hæfileikaríku einstaklinga. Við erum spennt að taka á móti þér og deila með þér endalausri listi, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni. |
13:58 |
21. mars 2024 |
Enn er möguleiki að sjá FEGRUNARMÖRK í Hillebrandtshúsi!
Um síðustu helgi var opnuð sýningin Fegrunarmörk í Hillebrandtshúsi á Blönduósi. Á sýningunni eru verk frá listafólki af svæðinu sem deila sýn sinni á mannlega fegurð. Yfir 40 manns mættu á opnunardaginn, nutu léttra veitinga og tóku þátt í að skapa lifandi myndverk á staðnum, afrakstur þess má sjá á sýningunni! Sýningin verður opin alla daga fram til laugardagsins 23. mars, kl. 16-18. Aðgangur er ókeypis - hvetjum alla til að mæta og styðja við fjölbreytt menningarlíf í héraði. |
11:16 |
21. mars 2024 |
Golfklúbburinn Ỏs hlaut hvatningarverðlaun Ungmennasambands Austur-Húnvetninga
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt ársþing sitt nýverið. Næstum fullt hús var á þinginu en af 36 þingfulltrúum frá aðildarfélögum mættu 35. Átta tillögur voru lagðar fyrir þingið og voru þær allar samþykktar með smávægilegum breytingum. Snjólaug Jónsdóttir var kosin áfram formaður USAH. Eyþór Franzson Wechner gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem varaformaður USAH og tók Brynhildur Erla Jakobsdóttir við sæti hans. |
11:22 |
20. mars 2024 |
Norðaustan stórhríð á morgun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra á morgun fimmtudag en hún gildir frá klukkan 08:00 til 02:00. Spáð er norðaustan 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu og talsverðri ofankomu á Ströndum. Búast má við slæmu skyggni og versnandi færð. Gefin hefur verið út appelsínugul veðurviðvörun fyrir Vestfirði á sama tíma. |
11:11 |
20. mars 2024 |
Leikflokkur Húnaþings vestra verðlaunaður
Leikflokkur Húnaþings vestra hefur hlotið viðurkenninguna framúrskarandi verkefni á sviði menningar 2023 sem veitt er af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Leikflokkurinn fær viðurkenninguna fyrir leikritið Himinn og jörð eftir Ármann Guðmundsson en söngleikurinn var saminn fyrir leikflokkinn við 16 lög Gunnars Þórðarsonar. Þá hefur leikflokkurinn getið af sér gott orðspor við uppsetningu á á öðrum verkefnum. |
16:13 |
19. mars 2024 |
Fróðleiksmolakaffi Landsvirkjunar og vefstreymi
Á morgun, miðvikudaginn 20. mars, verður dagskrá á vegum Landsvirkjunar í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar klukkan 16:30 með kaffi og kleinum, en í framhaldinu koma þrjú 20-30 mínútna erindi tengd náttúrunni við Blöndu. Þau sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með í streymi (https://www.youtube.com/watch?v=nuFIw1MpJcE) sem hefst klukkan 17 og líkur um 18:30. |
13:22 |
19. mars 2024 |
Vinnustofa um mótun loftslagsstefnu
FRESTAÐ VEGNA VEÐURS
Á föstudaginn klukkan 12:30-16:00 verður haldin vinnustofa á Hótel Laugarbakka til að ræða framtíðarsýn sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum í loftslagsmálum. Allir sem hafa áhuga á loftslagsmálum og framtíð sveitarfélaganna Húnabyggðar, Húnaþings vestra, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar eru hvattir til að taka þátt. Til þess að móta vel ígrundaða stefnu er mikilvægt að fá ólík sjónarmið að borðinu. Hvetjum ykkur til að taka þátt og eiga góða vinnustund með okkur, segir í auglýsingu um vinnustofuna. |