21:53 |
28. apr. 2024 |
Halla Hrund forsetaframbjóðandi á ferð um Norðurland í vikunni
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að framundan eru forsetakosningar. Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands. Tveir fundir verða í Húnavatnssýslum, í Víðigerði og á Blönduósi. |
10:03 |
27. apr. 2024 |
Samningur um styrk til uppsetningar samfélags- og tæknimiðstöðvar á Hvammstanga
Húnaþing vestra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning um 10,5 milljón króna styrk til uppsetningar samfélagsmiðstöðvar og tæknimiðstöðvar í anda FabLab smiðju í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Verkefnið, sem nefnist Hjartað í Húnaþingi vestra, snýst um að koma upp nýsköpunar-, viðgerða- og þróunaraðstöðu fyrir íbúa á svæðinu, sem og aðstöðu fyrir félagsstarf. |
09:43 |
27. apr. 2024 |
Styrkir til uppbyggingar ferðamannastaða
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði í gær úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Alls bárust 125 umsóknir um styrki, fyrir rúmlega 2,9 milljarða króna, til verkefna að heildarfjárhæð rúmlega 4 milljarða. Að þessu sinni hljóta 29 verkefni styrk úr sjóðnum, samtals að fjárhæð 538,7 milljónir króna, og dreifast þau um land allt. Tvö verkefni í Austur-Húnavatnssýslu fengu styrk. |
10:39 |
26. apr. 2024 |
Warped - sýning textíllistamanna
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir. |
10:32 |
26. apr. 2024 |
Plokkað um allt land um helgina
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör. |
22:20 |
25. apr. 2024 |
Opið hús í Nesi listamiðstöð á laugardaginn
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8. |
21:19 |
25. apr. 2024 |
Söfnun fyrir Ingimar Emil Skaftason Brúsastöðum
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann. |
09:33 |
25. apr. 2024 |
Gleðilegt sumar!
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn. |
09:30 |
25. apr. 2024 |
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi. |
00:30 |
25. apr. 2024 |
Ungmennafélagið Hvöt kynnir: Stuðningsmannalagið "Áfram Hvöt"
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja. |
11:19 |
24. apr. 2024 |
Góð þátttaka á vinnustofu um loftslagsmál
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið. |
13:50 |
23. apr. 2024 |
Dregið í happdrætti í tengslum við val á slagorði
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna. |
10:49 |
23. apr. 2024 |
Vettvangsliðar á Skagaströnd fengu fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð. |
10:42 |
23. apr. 2024 |
Vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd. |
10:30 |
23. apr. 2024 |
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. |