Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:47 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:47 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:47 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:47 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:47 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:47 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Áætlað er að uppbygging ferðaþjónustu á Hveravöllum muni í heildina kosta um 600 milljónir króna. Fyrirtækið Allrahanda áformar gríðarlega uppbyggingu á næstu árum í samvinnu við Húnavatnshrepp til að sinna ferðaþjónustu á hálendinu. Uppbyggingin mun fara fram utan friðlands og núverandi mannvirki sem eru innan friðlandsins, eins og núverandi bílastæði, verða aflögð og grædd upp. Byggt verður upp nýtt bílastæði utan friðlandsins. Sagt er frá þessu í Fréttablaðinu í dag.
Rætt er við Þóri Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Greyline, sem segir að allt frá því fyrirtækið kom inn í rekstur Hveravalla fyrir nokkrum árum, hafi það varið um eitt hundrað milljónum í uppbyggingu á svæðinu, allt frá salernisaðstöðu og neysluvatnskerfi til uppbyggingar á fjarskiptum í samvinnu við símafyrirtækin.
„Við sjáum mikinn fjölda gesta koma á Hveravelli á hverju ári og þjónustan á staðnum er ekki einskorðuð við sumarmánuðina. Þjónustan er notuð allt árið.“ segir Þórir. „Til að hægt sé að taka við gestum og bjóða þeim upp á góða þjónustu þarf að ráðast í miklar endurbætur á byggingum á svæðinu. Við munum því byggja nýtt þjónustuhús á staðnum en hús á staðnum verður fjarlægt á móti.“
Uppbyggingin mun fara fram utan friðlands og núverandi mannvirki sem eru innan friðlandsins, eins og núverandi bílastæði, verða aflögð og grædd upp. Byggt verður upp nýtt bílastæði utan friðlandsins. Þetta er gert að mati Þóris til að vernda friðlandið og náttúrulega ásýnd þess. „Þau hús sem við ætlum að byggja á svæðinu munu síðan falla vel að umhverfinu. Ásýnd svæðisins mun batna við uppbygginguna og við teljum þetta vera til hagsbóta fyrir svæðið í heild sinni,“ segir Þórir í samtali við Fréttablaðið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |