Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Umhverfisstofnun telur að fyrirhuguð þjónustumiðstöð á Hveravöllum eigi að fara í umhverfismat hjá Skipulagsstofnun. Stofnunin bendir á í umsögn sinni að í stað hefðbundins skála standi nú til að reisa hótel fyrir 120 gesti og stórt bílastæði. Stofnunin minnir á að samkvæmt lögum verði hálendismiðstöð á Hveravöllum að falla að öllu leyti að kröfum um svokallaða óbyggðaupplifun. Sagt er frá þessu á vef Ríkisútvarpsins í dag.
Fyrr í þessum mánuði var greint frá því í fréttum að fyrirtækið Allrahanda áformi gríðarlega uppbyggingu á næstu árum í samvinnu við Húnavatnshrepp til að sinna ferðaþjónustu á hálendinu og er áætlað að uppbyggingin á Hveravöllum muni í heildina kosta um 600 milljónir króna. Uppbyggingin mun fara fram utan friðlands og núverandi mannvirki sem eru innan friðlandsins, eins og núverandi bílastæði, verða aflögð og grædd upp. Reisa á 640 fermetra þjónustumiðstöð með veitingasal, gistirými og gestastofu og byggt verður upp nýtt bílastæði utan friðlandsins.
Hótel mun breyta ásýnd svæðisins
Umhverfisstofnun segir í umsögn að hún telji að framkvæmdirnar eigi að fara í umhverfismat. Slíkt væri kjörinn vettvangur til að meta hvers konar starfsemi og mannvirki falli að kröfum um óbyggðaupplifun á hálendinu. Stofnunin telur að hótel muni breyta verulega ásýnd svæðisins og það geti mögulega leitt til aukins álags á viðkvæmt svæði og upplifun þeirra sem þarna fara um. Þá hefur stofnunin áhyggjur af því að aukin vatnstaka geti haft neikvæð áhrif á vatnsbúskap hverasvæðisins.
Umhverfisstofnun telur að meta þurfi hvort þessi fyrirhugaða uppbygging sé í samræmi við markmið stjórnvalda um uppbyggingu á hálendi Íslands - umfjöllun um möguleg áhrif á hverasvæðið sé ábótavant auk þess sem meta þurfi álag af völdum ferðamanna á hið viðkvæma svæði sem Hveravellir séu.
Í frétt Ríkisútvarpsins kemur fram að ekki væri líklegt að fyrirhugað hús yrði tilbúið fyrr en eftir 2-3 ár. Þegar niðurstaða lægi fyrir um umhverfismat þyrfti Húnavatnshreppur að samþykkja deiliskipulag og að því loknu gætu framkvæmdir hafist og þar sem Hveravellir eru á hálendinu er tími til framkvæmda afar takmarkaður.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |