Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:17 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:17 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:17 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:17 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:17 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:17 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Íbúðalánasjóður auglýsti í vikunni tilraunaverkefni í húsnæðismálum á landsbyggðinni. Markmiðið er að leita leiða til þess að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði.
Horft er til þess að 2-4 sveitarfélög taki þátt í tilraunaverkefninu og að það nái að fanga mismunandi áskoranir á ólíkum landsvæðum. Þannig geta þær lausnir sem verkefninu er ætlað að móta nýst á sem breiðustum grunni, eins og segir í auglýsingunni.
Verkefnið tekur mið af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem og stefnumótandi byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi 11. júní síðastliðinn. Í byggðaáætlun er m.a. kveðið á um markmið um fjölgun íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu íbúðarhúsnæði hamlar uppbyggingu í sveitarfélaginu.
Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins er grundvallarforsenda fyrir þátttöku í verkefninu. Hafi sveitarfélagið ekki þegar unnið slíka áætlun og skilað til Íbúðalánasjóðs þarf það að hafa til þess vilja og getu að ljúka við gerð hennar.
Í auglýsingunni óskar Íbúðalánasjóður eftir þátttöku sveitarfélaga í tilraunaverkefnið og er umsóknarfrestur 30. september næstkomandi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |