Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:28 0 0°C
Laxárdalsh. 10:28 0 0°C
Vatnsskarð 10:28 0 0°C
Þverárfjall 10:28 0 0°C
Kjalarnes 10:28 0 0°C
Hafnarfjall 10:28 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Tilkynningar | 04. ágúst 2020 - kl. 10:07
Takmarkanir á aðgengi Félags- og skólaþjónustu A-Hún. vegna COVID-19
Tilkynning

Samkvæmt aðgerðaáætlun Félags- og skólaþjónustunnar A-Hún. vegna COVID-19 hafa verið settar takmarkanir á aðgengi að Félags- og skólaþjónustunni.

  • Allir þjónustuþættir eru virkir, þ.e. félags- og skólaþjónusta, barnavernd, þjónusta við aldraða sem og grunnþjónusta sveitarfélaganna sem er undir verkstjórn og ábyrgð Félags- og skólaþjónustunnar, þ.e. skipulag félagslegrar heimaþjónustu og liðveisla. Starfsemi félagslegrar heimaþjónustu er á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags og helst óbreytt að sinni.
  • Ef einstaklingar eru með liðveislu eða heimaþjónustu og eru í sérstökum áhættuhópi skulu einstaklingar meta það sjálfir hvort þeir vilja njóta þjónustunnar áfram. Í samráði við sveitarfélagið er í einhverjum tilvikum hægt að breyta fyrirkomulagi til þess að reyna að takmarka áhættu eins og hægt er.
  • Fundum er frestað sem ekki eru brýnir og frekar notast við fjarfundi, símafundi og tölvupóst. Upplýsingar um starfsfólk Félags- og skólaþjónustunnar eru á heimasíðunni www.felahun.is.
  • Barnaverndarstarf verður með hefðbundnum hætti, vitjunum eða viðtölum í barnavernd verður ekki frestað nema mjög brýn ástæða sé til (þ.e. einstaklingur í sóttkví eða einangrun).
  • Sveitarfélög sjá um matarsendingar til skjólstæðinga í heimahúsum.
  • Ekki hefur verið lokað fyrir aðgang að Hnitbjörgum íbúðakjarna á Blönduósi. Aðstandendur og gestir eru þó beðnir um að gæta varúðar þar sem einhverjir íbúa tilheyra áhættuhópi og eru í meiri hættu á að smitast af COVID-19 veirunni en aðrir. Er þeim tilmælum beint til fólks sem er með kvef eða flensulík einkenni að gæta fyllstu varúðar og koma ekki í heimsókn til íbúa. Einstaklingar sem hafa ferðast utanlands eru beðnir um að koma ekki í heimsókn fyrr en í fyrsta lagi að 14 dögum liðnum eftir heimkomu.

Takmarkanir eru á heimsóknum í stofnanir og húsnæði Félags- og skólaþjónustunnar, nema fyrir þá sem þangað eiga brýn erindi. Það er í höndum forstöðumanna stofnana að sjá um framkvæmd á þessu. Við óskum eftir góðri samvinnu og skilningi. Nánar tiltekið er um að ræða:

Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi

  • Fólki er bent á að hafa fyrst samband við starfsmenn í síma eða tölvupósti áður en komið er á skrifstofuna.
  • Reynt er eftir fremsta megni að sinna erindum í gegnum síma eða tölvupóst nema brýn nauðsyn sé til annars.
  • Lokun eða frekari takmarkanir á heimsóknum verða tilkynntar ef til þeirra kemur.

Upplýsingar um starfsfólk

Sara Lind Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri, sara@felahun.is s. 455-4170/455-4171/863-5013
Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri, thordis@felahun.is, s. 455-4174/661-5812
Ásta Þórisdóttir, verkefnastjóri – ráðgjafi, asta@felahun.is, s. 455-4172/ 893-4188
Sigrún Líndal, iðjuþjálfi – ráðgjafi, sigrun@felahun.is, s. 455-4173/ 844-5013

Neyðarnúmer barnaverndar og heimilisofbeldis er 112 (eftir kl. 16 virka daga, um helgar og á hátíðisdögum).

Dvalarheimilið Sæborg

Ekki hefur verið lokað fyrir heimsóknir á Sæborg dvalarheimili aldraðra. Þá eru aðstandendur sem hafa verið erlendis beðnir að koma ekki í heimsókn fyrr en eftir 14 daga frá komu til landsins. Einnig eru gestir beðnir um að virða eftirfarandi heimsóknareglur:

  1. Alls ekki koma í heimsókn ef:
    1. Þú ert í sóttkví.
    2. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
    3. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
    4. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  2. Heimsóknartími  er opinn, en láta vita af sér.
  3. Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna Rakning C-19.
  4. Miðað er við að gengið sé um aðaldyr stofnunarinnar. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Spritt er í hverju herbergi.
  5. Virðið  2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa og starfsfólk eins og hægt er.
Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið