Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Breytingar verða gerðar á sóttvarnarreglum á mánudaginn og þá munu samkomutakmarkanir miða við hámark 50 manns í stað 20. Sund- og baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns.
Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða ýmsar tilslakanir gerðar á skólastarfi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þær taka gildi frá og með mánudeginum 10. maí og eiga að gilda í rúmar tvær vikur.
Breytingarnar sem taka gildi á mánudaginn eru eftirfarandi:
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.
- Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.
- Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.
- Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.
- Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.
- Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.
- Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.
- Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.
- Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.
- Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.
Skólastarf
- Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.
- Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.
- Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólanna.
- Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.
- Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.
- Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |