Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:43 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:43 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:43 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:43 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:43 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:43 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Framkvæmdir við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi eru hafnar. Um er að ræða byggingu á nýju húsi sem hannað er til að hýsa fjölbreyttar þarfir viðskiptavina gagnaversins á öruggan og umhverfisvænan máta. Munu snjallnetslausnir verða nýttar til að tryggja rekstraröryggi og auka nýtni orkuflutnings.
Etix Everywhere Borealis leggur áherslu á rekstur sjálfbærra gagnavera á heimsmælikvarða með lágmarks kolefnisfótspori. Það er gert með því að nýta umhverfishita til kælingar og keyra tölvubúnað með endurnýjanlegri orku í gegnum öruggt flutningskerfi raforku á Íslandi.
Stækkun og vöxtur á svæðinu er háður afhendingu á orku og er þessi framkvæmd liður í því að fylgja afhendingaráætlun sem mun eiga sér stað í áföngum. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir frekari stækkun á komandi árum. “Það er okkar bjargfasta trú að Blönduós sé einstakt svæði til uppbyggingar á gagnaversþjónustu. Samspil nágrennis og landfræðilegra þátta við Blönduvirkjun,ásamt framsýni og stefnu sveitarfélagsins gerir svæðið eitt það besta sem völ er á fyrir slíka uppbyggingu. Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagnaverslausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi”, segir Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok þessa árs en það hefur reynst félaginu vel að vinna með öflugum verktökum á svæðinu. Unnið hefur verið með hönnuðum og sérfræðingum frá EcoCooling, Arkís, Verkís og Beka við útfærslu á gagnaverinu.
“Það er mikil ánægja innan okkar raða að geta ráðist í stækkun á gagnaverinu á Blönduósi sem er eina stóra gagnaverið sem rekið er utan suðvestur horns landsins. Staðsetningin er kjörin til uppbyggingar og býður upp á mikil tækifæri í umhverfisvænum og öruggum gagnaverslausnum. Samstarfið við sveitarfélagið hefur verið til fyrirmyndar og stefnum við að frekari vexti á svæðinu á komandi árum”, segir Björn.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |