Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Lesendur Húnahornsins hafa valið Karólínu Elísabetardóttir sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2023. Þetta er í annað sinn sem Karólína hlýtur þessa nafnbót því lesendur Húnahornsins völdu hana einnig mann ársins 2021. Karolína er athafnakona og bóndi í Hvammshlíð í Skagabyggð. Undir forystu hennar var hafin leit að erlendum rannsóknum sem sýna fram á lausnir gegn riðuveiki. Í kjölfarið var rannsóknarhópur stofnaður sem fann svo verndandi arfgen gegn riðu.
Karólína leiddi saman vísindafólk frá ýmsum löndum í þeirri viðleitni sinni að færa riðurannsóknir hér á landi til nútímans og um leið á sömu braut og gert hefur verið í öðrum löndum um langt skeið. Markmiðið var að leita að genum í íslenskum kindum sem reynst gætu verndandi gagnvart riðusmiti. Rannsóknarhópurinn fann verndandi arfgen gegn riðu í sex kindum á sveitabæ í Reyðarfirði og síðustu misseri hafa svo fundist fleiri kindur um landið með þessi arfgen. Tíðindin þykja stórmerkileg og marka tímamót í baráttunni við að útrýma riðuveiki á Íslandi.
Lesendur Húnahornsins hafa greinilega fylgst vel með Karólínu og hennar frumkvöðlastarfi síðustu ár. Hún hefur einnig gefið út dagatöl sem vakið hafa mikla athygli og þá er hún að framleiða osta sem heita Hvammshlíðarostar. Karólína í Hvammshlíð býr á mörkum tveggja sýslna, Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu, á þeim slóðum sem vegurinn yfir Þverárfjall liggur hæst. Hún er þýsk að uppruna en settist að á Íslandi fyrir margt löngu. Þess má geta að lesendur héraðsfréttamiðilsins Feykis kusu Karólínu mann ársins á Norðurlandi vestar nýverið.
Allir sem sendu inn tilnefningu er þökkuð þátttakan en hún var með ágætum að þessu sinni. Fjölmargir fengu verðskuldaða tilnefningu en langflestar féllu þær Karólínu í skaut. Má þar nefna að í öðru sæti varð Reynir Grétarsson athafnamaður sem staðið hefur fyrir mikilli uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi.
Þetta er í 18. sinn sem lesendur Húnahornsins velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu.
Menn ársins síðustu ár eru þessir:
2023: Karólína Elísabetardóttir
2022: Bryndís Bragadóttir
2021: Karólína Elísabetardóttir
2020: Valdimar Guðmannsson
2019: Björgunarsveitarfólk úr Björgunarfélagið Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzson Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir
2009: Bóthildur Halldórsdóttir
2008: Lárus Ægir Guðmundsson
2007: Rúnar Þór Njálsson
2006: Lárus B. Jónsson
2005: Lárus B. Jónsson
Húnahornið óskar Karólínu til hamingju með útnefninguna.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |