Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnaþing vestra og menningar- og viðskiptaráðuneytið hafa gert með sér samning um endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga, sem eru fyrir löngu orðnar tímabærar. Framlag ráðuneytisins nemur 40 milljónum króna. Fyrir liggur úttekt á ástandi hússins sem unnin var árið 2020 og er ráðgert að ráðast í endurnýjun þaks í sumar, að því er segir á vef Húnaþings vestra.
Þar kemur fram að stuðningur við framkvæmdir nú koma til vegna áforma um uppsetningu samfélagsmiðstöðvar í húsinu fyrir ungmenni og aðra íbúa sveitarfélagsins. Ráðinn verður starfsmaður sem vinna mun með ungu fólki og hafa jafnframt umsjón með þróun samfélagsmiðstöðvarinnar. Einnig hefur fengist styrkur til kaupa á tækjum í tæknismiðju í anda FabLab smiðja.
Á vef Húnaþings vestra segir: „Félagsheimilið Hvammstanga var byggt af miklum stórhug og formlega vígt árið 1969. Húsið er teiknað um eða upp úr 1960 af Bárði Daníelssyni verkfræðingi og arkitekt sem var nokkuð áberandi sérstaklega á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og eru til eftir hann margar vandaðar og eftirtektaverðar byggingar. Segja má að húsið sé nokkurskonar hjarta í samfélaginu og því hefur samfélagsmiðstöðin fengið vinnuheitið Hjartað í Húnaþingi vestra. Það er mikið fagnaðarefni að með framkvæmdum í sumar verður stigið skref í átt að því að færa þetta glæsilega hús til fyrri vegs og virðingar.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |