Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 19. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:12 0 0°C
Laxárdalsh. 08:12 0 0°C
Vatnsskarð 08:12 0 0°C
Þverárfjall 08:12 0 0°C
Kjalarnes 08:12 0 0°C
Hafnarfjall 08:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
70. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 04. maí 2021 - kl. 19:56
Ný velferðarstefna fyrir aldraða
Eftir Guðjón S. Brjánsson

Í lok mars lögðum við nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar fram þingsályktunartillögu um nýja velferðarstefnu fyrir aldraða. Þar er lagt til að snúið verði frá ríkjandi viðhorfum í þjónustu við aldraða og markvisst horfið frá einhliða stofnanasýn.

Með tillögunni er lögð höfuðáhersla á að hver einstaklingur eigi þess kost að búa á eigin heimili til æviloka með persónulegum stuðningsúrræðum við hæfi og samkvæmt eigin óskum.  

Ný sýn stjórnvalda auðveldi eldra fólki umskipti í aðgengilegt húsnæði með virkum, þekktum og raunhæfum leiðum.  Stefnuleysi og takmörkuð framtíðarsýn hefur ríkt í málaflokknum og brýnt að stjórnvöld stigi skref í þessa átt, sýni frumkvæði, forgangsraði með nýjum hætti og greiði með beinni aðkomu fyrir stórauknu framboði á hentugum og öruggum búsetumöguleikum.  Beinir hvatar geta m.a. falist í fjárhagslegri fyrirgreiðslu þar sem það á við.  Allt til þess að tóna niður áralanga og kostnaðarsama stofnanavistun. 

Í þessu sambandi verði fjölmargir möguleikar á sviði heilbrigðis- og velferðartækni nýttir eins og þekkt er víða um lönd.  Sérstakt þróunarverkefni verði sett á laggirnar varðandi þennan þátt. 

Að þessu beinist okkar sýn í Samfylkingunni og áskoranir gagnvart fagfólki sem velur sér öldrunarþjónustu sem starfsvettvang eru talsverðar. Til þess að tryggja framkvæmd þessara veigamiklu áherslubreytinga er mikilvægt að kveikja áhuga og skilning víða. Lykilatriði er fá til samstarfs bæði fagfólk og annað sérhæft starfsfólk og tryggja þjálfun og innleiðingu í samræmi við áherslur stjórnvalda um einstaklingsbundna þjónustu á eigin heimili.

Liður í umbreytingarferlinu verði jafnframt endurskoðun á fjárhagslegri umgjörð málaflokksins, þ.m.t. fjármögnun stofnanavistunar og greiðsluþátttöku einstaklinga. 

Markmið um persónulegt og fjárhagslegt sjálfræði og sjálfstæði verði virt í öllu tilliti.

Endurskoðun almannatryggingakerfisins er síðan sjálfstætt og brýnt verkefni sem æskilegt er að unnið verði að samhliða. Þar eru álitaefnin mörg, m.a. um vaxandi áhrif lífeyrissjóðsgreiðslna hjá eldra fólki og tengsl þeirra við greiðslur almannatrygginga.  

Hluti af verkefninu verði þróun á reiknilíkani sem geri sveitarfélögum kleift að veita viðeigandi, markvissa og breytilega þjónustu eftir þörf og aðstæðum hverju sinni.  

Með því að undirstrika viðhorfs- og stefnubreytingu verði lög um málefni aldraðra nr. 125/1999 endurskoðuð í því augnamiði að þau verði felld úr gildi.  

Mikilvægt er að vandað verði til undirbúnings og faglegur og fjárhagslegur ávinningur gerður mælanlegur, metinn reglulega og verkefninu skipt í tímasetta áfanga. Það á bæði við um þá margvíslegu þætti sem snúa að ríkisvaldinu og sveitarfélögum en ekki síst að þeim sem eiga mestra hagsmuna að gæta, hinum öldruðu sjálfum.

Um þessi atriði fjallar hófstillt en á sama tíma róttæk og löngu tímabær þingsályktunartillaga okkar í Samfylkingunni, sem nánar má lesa um á  https://www.althingi.is/altext/pdf/151/s/1199.pdf

Guðjón S. Brjánsson
þingmaður Samfylkingar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið