Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:26 0 0°C
Laxárdalsh. 01:26 0 0°C
Vatnsskarð 01:26 0 0°C
Þverárfjall 01:26 0 0°C
Kjalarnes 01:26 0 0°C
Hafnarfjall 01:26 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 13. maí 2022 - kl. 14:58
Setjum X við B á kjördag

Á morgun er sögulegur dagur, en þá verður í fyrsta skipti gengið til kosninga í nýja sameinaða sveitarfélaginu okkar. Kjósendur fá jafnframt að kjósa um tillögur að nýju nafni á sveitarfélagið, svo það er tvöföld ástæða til að mæta á kjörstað. Það að kjósa fulltrúa í sveitarstjórn er mikilvægur þáttur lýðræðis okkar og það að bjóða fram starfskrafta sína á framboðslista er jafnframt stór ákvörðun. Hinir kjörnu fulltrúar eru nefnilega fulltrúar fólksins og þeim ber að nálgast starf sitt með mikilli varfærni, vinnusemi og virðingu. Til þeirra verkefna erum við á B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna tilbúin að leggja allt okkar í.

B-listinn gaf út ítarlega málefnaskrá sem unnin var af samheldnum hópi fólks. Frambjóðendur stýrðu þeirri vinnu, en einnig var leitað upplýsinga og ráða hjá breiðum hópi fólks utan listans. Verkefnin sem bíða okkar í ný sameinuðu sveitarfélagi eru ærin. Þau verða skemmtileg, krefjandi og fjölbreytt og erum við staðráðin í að standa þannig að málum að almenningur geti treyst því að það sem gert verði, sé í almannaþágu og með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Í hópnum okkar má finna mikla reynslu víða úr samfélaginu. Því teljum við okkur eiga fullt erindi í nýja sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags sem nú er kosið til í fyrsta sinn. Við á B-listanum erum klár í verkefnið og teljum okkur geta leitt nýja sveitarstjórn með gott fólk í hverju sæti.

Sem dæmi um áherslumál okkar á B-listanum má nefna að okkur finnst að allir íbúar sveitarfélagsins eigi að fá tækifæri til að stunda alhliða heilsurækt því gott íþróttalíf og möguleikar til hreyfingar eru grundvallarstoðir góðs samfélags. Að stjórnsýsla í nýju sveitarfélagi eigi að einkennast af faglegum vinnubrögðum, áætlanagerð að vera vel unnin og öll ákvarðanataka gegnsæ og skilvirk. Við viljum að rekin verði öflug félags- og öldrunarþjónusta þar sem tekið verði tillit til þarfa ólíkra hópa. Sveitarfélagið á að marka sér heilstæða umhverfisstefnu þar sem fjallað verði um loftslagsmál, finna megi öfluga fræðslu um umhverfismál og tekin ákveðin stefna varðandi innkaup, sorphirðu, flokkun og urðun í sveitarfélaginu svo dæmi séu tekin. Þá viljum við að vandað verði til uppbyggingar nýrra skólastofnana á leik- og grunnskólastigi. Huga þarf vel að þörfum yngstu íbúanna óháð búsetu og þeim mikla mannauði sem þegar er til staðar í skólasamfélaginu. Þetta eru einungis nokkrir helstu áherslupunktar B-listans sem býður fram kröftugan lista til komandi sveitarstjórnarkosninga.

Kjósandi góður, við heitum því að leggja okkur öll fram við að standa undir því trausti sem þú leggur á fólkið okkar og málefni okkar. Við erum tilbúin að hlusta á raddir fólksins og gera okkar allra besta til að standa undir þeim væntingum sem gerðar verða til okkar. Nálgast verkefnin af auðmýkt og sýna það í verki með því að vinna verkin vel og með sóma.

Ég set X við B á kjördag og bið þig kæri kjósandi að gera slíkt hið sama, framtíðin er okkar í nýju sameinuðu sveitarfélagi.

Auðunn Steinn Sigurðsson

Skipar 1. sæti á lista Framsóknar og annarra framfarasinna

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið