Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:37 0 0°C
Laxárdalsh. 09:37 0 0°C
Vatnsskarð 09:37 0 0°C
Þverárfjall 09:37 0 0°C
Kjalarnes 09:37 0 0°C
Hafnarfjall 09:37 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 06. mars 2019 - kl. 07:04
Þú ert handarfar skaparans
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Sú var tíðin að ég rembdist eins og rjúpan við staurinn við að reyna að vera eitthvað. En þá var ég aldrei neitt, nema sýndarmennskan og ein stór vonbrigði.

Það var ekki fyrr en ég gafst upp og hætti að rembast að mér opinberaðist að í sjálfum mér væri ég svo sem ekki neitt, en þó óendanlega dýrmætur í augum Guðs, að mér fannst ég verða eitthvað, vera einhvers virði.

Þá fyrst fór ég að hafa eitthvað fram að færa. Þá fyrst fór ég að geta gefið eitthvað af mér. Því þá fyrst fannst mér ég vera nóg. "Því að mátturinn fullkomnast í veikleika."

Ástarljóð

Þú ert ekki mistök eða slys eða eins og hver annar aðskotahlutur í þessari veröld. Heldur ljóð sem Guð hefur ort. Ástarljóð, sem Guð hefur ort og vill fá að yrkja með þér frá degi til dags. Ljóð sem ætlað er að bera birtu og yl inn í aðstæður fólks. Því er svo mikilvægt að þú standir vörð um sjálfan þig og lífið dýrmæta sem í þér býr. Því að með þér vill Guð fá að skrifa / skapa réttlátari, kærleiksríkari og betri heim.

Í ljósi mannlegs veruleika kann þér líklega eins og mér stundum að líða eins og sandkorni á strönd, sem treðst undir í áreiti og baráttu daganna.

En, í ljósi Guðs ertu eins og óendanlega fögur dýrmæt perla, einstakur gimsteinn, fylltur leyndardómsfullum tilgangi í eilífri áætlun Guðs. Þess Guðs sem elskar þig út af lífinu. Vissirðu, að þú ert nefnilega eilífðar verðmæti, náttúruperla sem ber að huga að, sýna virðingu, pússa og gæta. Það er nefnilega enginn eins og þú. Enginn er með sama göngulagi í þessari veröld sem þú - og þér er ætlað mikilvægt hlutverk í þessum heimi. Eins og þú ert, þar sem þú ert, hverju sinni.

Þess vegna ert þú nóg.

Eilífðar verðmæti

Í lófa Guðs er nafn þitt ritað. Þú ert handarfar skaparans í þessum heimi og líf þitt hið fegursta ljóð. Heilagur andi hefur blásið þér líf, anda og kraft í brjóst til að vera sá eða sú sem þú ert. Þú ert leikflétta í undri kærleikans. Njóttu þess og láttu muna um þig.

Þegar sjálfur höfundur og fullkomnari lífsins horfir á þig sér hann nefnilega eilífðar verðmæti sem hann vill ekki að fari í súginn. Heldur óskar hann þess og biður að þau mættu vaxa og dafna, bera ávöxt og vara um eilífð.

Brot úr demanti

Kærleikur Guðs er líkt og demantur sem fellur til jarðar og splundrast í óteljandi kristalla. Einn þeirra er ætlaður þér svo þú fáir notið þeirra verðmæta um eilífð. Gættu þess aðeins að pússa perlurnar í lífi þínu svo að þær fái notið sín, því að í þeim felst öll þín hamingja.

Öll jafn mikilvæg

Eins og ólíkir ávextir við erum þótt í sömu körfunni séum. Með misjafna hæfileika, ólíkar skoðanir og mismunandi þarfir. Öll jafn mikilvæg þótt ólík séum. Vegum hvert annað upp, engan má vanta. Tölum saman án fordóma.

Allir fyrir einn og einn fyrir alla. Stöndum saman í baráttunni fyrir bættari samskiptum og betri heimi.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Glaðheimar
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið