Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:29 0 0°C
Laxárdalsh. 03:29 0 0°C
Vatnsskarð 03:29 0 0°C
Þverárfjall 03:29 0 0°C
Kjalarnes 03:29 0 0°C
Hafnarfjall 03:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Reykjavík árið 1860. Ljósm: https://commons.wikimedia.org
Reykjavík árið 1860. Ljósm: https://commons.wikimedia.org
Jón Árnason. Ljósm: https://is.wikipedia.org
Jón Árnason. Ljósm: https://is.wikipedia.org
Pistlar | 14. ágúst 2019 - kl. 15:02
Sögukorn af Jóni Árnasyni
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Í tilefni af því að 200 ár eru frá fæðingu Jóns Árnasonar, þjóðsagnasafnara og bókavarðar, verður haldið málþing á Skagaströnd á afmælisdegi Jóns, laugardaginn 17. ágúst næstkomandi. Dagskráin hefst með guðsþjónustu í Hofskirkju klukkan 11. Síðan verður afhjúpað söguskilti við Skagabúð og boðið verður til veitinga í félagsheimilinu Skagabúð. Nánar má sjá dagskrána hér. Meðfylgjandi eru nokkur sögukorn af Jóni sem fæddist að Hofi á Skaga árið 1819 og lést í Reykjavík árið 1888:

  1. Jón var fæddur 17. ágúst 1819 að Hofi á Skaga, lést í Reykjavík 4. sept. 1888.
    Búferli: Hof - Syðri-Ey - Steinnes - Skarð á Landi - verbúðir í Grindavík og Keflavík - til sr. Ásmundar í Odda/1836 - Bessastaðaskóli/1837 - til Svb. Egilssonar á Eyvindarstöðum/1843 - Reykjavík/1846 - Stiftsbókasafn/1848 - umsjón v/Latínuskólann/1867-79.
  2. Meðan Jón var enn í föðurhúsum, fór að brydda á því, að hann hafði miklar mætur á sögum og lét hann hvern þann, er kom að Hofi, segja sér þær sögur, er hann kunni, og það eigi síður þótt þær væru svo geigvænlegar, að móðir hans yrði að halda utan um hann í rúminu, þar sem hann sat.
  3. Í húsi Jóns og Katrínar við Laufásveg dvaldi barnið Halldóra Bjarnadóttir ásamt móður sinni árin 1883-1885, hún segir: Skrifstofu Jóns man ég eins og ég hefði séð hana í gær og gamla frænda sitjandi í hrosshársfóðraða legubekknum man ég eins vel. Hann spurði mig strax hvað ég kynni af sögum og ég hóf frásögnina af Kolfinnu krókríðandi.
    Annað eins fádæmi af bókum hafði ég aldrei augum litið og mér var sagt að mér væri velkomið að skoða þær. Ég man enn hvaða bók ég dró fyrst út. Hún var svo lítil og falleg. Það var Manfreð í þýðingu Matthíasar.
    Katrín Þorvaldsdóttir frá Hrappsey var kona Jóns frænda, fyrirmannleg og falleg kona og mikill skörungur. Mér var sagt að kalla þau systur og bróður.
    Við vorum stundum við heyvinnu á túninu. Þar kom Bjarni frá Vogi. Hann jafnhattaði sáturnar og bar þær þannig inn í hlöðu. Það hafði ég aldrei séð áður.
    Svo liðu þau smám saman árin tvö hjá þeim Jóni, í leiguherbergi við hliðina á Hraungerðisbræðrum. Þar var nú tekið lagið með köflum. Þvílíkar rokur!
    Móðir mín var þarna í nokkurskonar sjálfsmennsku.
    Lífið hjá Jóni frænda var viðburðaríkt og skemmtilegt: Gestir, alltaf gestir, mest Breiðfirðingar, Eyjamenn og konur og Hólmarar, kempulegt og fallegt fólk. Eiríkur Kúld og frú Þuríður, frú Jóhanna Þorleifsdóttir og Ingibjörg dóttir hennar, frú Herdís Benedictsen og Ingileif dóttir hennar, tignarlegar og fallegar og svo Hrappseyjarfólkið.
  4. Jón var föðurbróðir Jóns Þórðarsonar prófasts á Auðkúlu en aðeins sjö ára aldursmunur var á þeim frændum. Þeir voru um hríð saman í æsku, urðu nánir vinir og skrifuðust á alla ævi. Um 240 bréf frá Jóni Þórðarsyni mun vera að finna í handritadeild Þjóðarbókhlöðu. Jón, langafi HKG, safnaði mörgum þjóðsögum fyrir frænda sinn en sjálfur mun hann ekki hafa verið mjög trúaður á sannleiksgildi sagnanna.
    Enginn var síminn á þessum árum og heimsóknir milli landshluta enginn hægðarleikur. Talið er að Jón Árnason hafi aðeins einu sinni sótt frænda sinn heim að Kúlu/prestsetrinu Auðkúlu. Það hafi verið sumarið 1861 og í ferð með honum væri bróðir hans sr. Þórður Árnason faðir Jóns prófasts.
    Jón var um hríð bússtjóri Sveinbjarnar Egilssonar á Eyvindarstöðum á Álftanesi en síðar umsjónarmaður í Lærða skólanum í Reykjavík og fólst í embætti hans að líta eftir nemendum og sjá til þess að þeir kæmust ekki upp með neinn ósóma eins og drykkjuskap.
    Jón Helgason biskup segir að Jón hafi verið vel látinn af piltunum. Hann hafi oft gefið sig á tal við þá á kvöld og innt þá eftir sögnum og siðum til sveita, haft á takteinum ýmiss konar fróðleik og verið piltunum innan handar um ýmislegt en margir þeirra voru fjarri átthöfum sínum og aðstandendum.
    Jón var mikill göngugarpur. Svo að segja hvernig sem viðraði fór hann í íslenska leðurskó eftir morgunbænir í skólanum og stikaði vestur á Seltjarnarnes. Þetta gerði hann í heilsubótarskyni og taldi sig hafa lengt ævi sína um 20 ár hið minnsta með þessu.
  5. Jón kvæntist 25. ág. 1866 Katrínu Þorvaldsdóttur frá Hrappsey, þau eignuðust einn son, Þorvald, misstu hann á unglingsaldri en ólu upp  frá 11 ára aldri Þorvald Thoroddsen náttúrufræðing, systurson Katrínar húsfreyju.

Hér birtust kaflar úr eftirtöldum ritum:

2. Pálmi Pálsson Æviágrip JÁ þjóðsagnasafnara og landsbókavarðar - Andvari 1891
3. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: Halldóra Bjarnadóttir Ævisaga 1960
4. Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir . . . hjá grassins rót 2018  

Nokkrar vefheimildir:
Kynnt afmælishátíð laugard. 19. ág. 2019: https://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=16062 
Hver var Jón Árnason: https://www.visindavefur.is/svar.php?id=73828   Þjóðsagnasíða/rannsóknarvinna síðustu ára: http://www.jonarnason.is/

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið